Það kom upp furðulegt atvik í leik Barcelona og Real Betis í vikunni, allavega fyrir þá sem horfðu á leikinn í sjónvarpi.
Leiknum lauk 2-1 fyrir Barcelona, en Raphinha og Robert Lewandowski skoruðu mörkin.
Liðið er á toppi spænsku deildarinnar með fimm stiga forskot á Real Madrid.
Það kom upp furðulegt atvik í leiknum eftir að Ronald Araujo, varnarmaður Börsunga, var tæklaður.
Atvikið gerðist fyrir framan auglýsingaskilltin og fyrir þá sem horfðu á leikinn í sjónvarpi virtist leikmaðurinn hverfa inn í þau vegna tækninnar.
Sjón er sögu ríkari. Þetta má sjá hér að neðan.
WHERE DID THE BARCELONA PLAYER GO⁉️ 🤣
Modern technology gets the best of Ronald Araújo! 🪄
Free to watch highlights 📺 https://t.co/EzEEtpmq6G#OptusSport #LaLiga pic.twitter.com/87wHZjGwHs
— Optus Sport (@OptusSport) February 2, 2023