Díana Dögg Magnúsdóttir, landsliðskona og fyrirliði þýska liðsins Zwickau, var í stóru hlutverki í mikilvægum sigri liðsins í dag.
Zwickau vann góðan heimasigur á Halle-Neustadt, 26:19, en liðin voru jöfn í 10. og 11. sæti deildarinnar, af fjórtán liðum, fyrir leikinn.
Díana skoraði þrjú mörk í leiknum og átti fimm stoðsendingar.
Zwickau er þar með komið fjórum stigum frá umspilssæti og fimm stigum frá fallsæti þegar fjórum umferðum er ólokið í deildinni.