„Tók meira leiðtogahlutverk og naut mín mjög vel“ Sindri Sverrisson skrifar 1. júní 2023 10:00 Glódís Perla Viggósdóttir með meistaraskjöldinn í fagnaðarlátum Bayern á sunnudaginn. Getty/Mark Wieland Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta, lék hverja einustu mínútu á nýafstaðinni leiktíð, þegar Bayern München varð Þýskalandsmeistari í fimmta sinn. Hún segir hlutverk sitt sem leiðtogi hjá Bayern hafa stækkað.
Glódís var að ljúka sinni annarri leiktíð hjá Bayern eftir að hafa komið frá Rosengård í sænsku úrvalsdeildinni. Í fyrra tók norski þjálfarinn Alexander Straus við og segir Glódís að það hafi hjálpað sér að blómstra enn frekar hjá einu allra besta liði heims. „Ég er ótrúlega stolt og það er gaman að fá svona mikið traust, og geta látið mína eiginleika skína meira en ég gat gert í fyrra. Þessi hugsun [nýja þjálfarans] og skandinavíski boltinn er eitthvað sem að ég er vön, svo ég gat hjálpað liðinu mikið. Ég er því ótrúlega stolt af þessu tímabili og það er gaman hvað okkur gekk vel sem liði. Það er alltaf það mikilvægasta,“ segir Glódís í viðtali við Svövu Kristínu Gretarsdóttur. Klippa: Glódís orðin meiri leiðtogi hjá Bayern „Ég tók svolítið meira leiðtogahlutverk og naut mín mjög vel í því. Þegar nýjar áherslur fóru að smella hjá liðinu, og allt liðið fór að leggja meira upp úr varnarleik þá hentaði það mér mjög vel, og einhvern veginn náðum við að samstilla okkur mjög vel. Þá er auðvelt að hafa áhrif á alla í kringum sig – draga það besta út úr öðrum og sjálfri mér líka. Á síðustu leiktíð spilaði ég svo sem allar mínútur eftir jól en naut mín kannski ekki eins vel og ég hef gert undir stjórn þessa nýja þjálfara,“ segir Glódís. Verandi hjá Bayern getur Glódís í raun varla tekið skref upp á við, í stærra félag og betra lið, en ljóst er að hún er í sigti fleiri félaga. Mikill uppgangur í Þýskalandi og Englandi Greint var frá því á mbl.is að Glódís væri á óskalista Arsenal en hún kveðst samningsbundin Bayern og ekki með annað í huga en að halda áfram hjá félaginu. Hún tekur þó undir að enska úrvalsdeildin sé spennandi kostur: „Það er mjög mikill uppgangur í ensku deildinni, sérstaklega eftir EM í fyrra, og mikill peningur og metnaður lagður í hana. Það er því klárlega spennandi deild en á sama tíma er þýska deildin einnig á ákveðinni uppleið, með meiri peningum, áhorfendum og áhuga. Það er gríðarlegur munur á áhorfendatölum. Kvennaboltinn alls staðar í heiminum er á mikilli uppleið og Englendingarnir eru rosalega góðir í að markaðssetja sig, svo sú deild er áberandi. Það eru mjög spennandi ár fram undan í kvennaboltanum, hjá öllum þessum stóru félögum sem eru að leggja pening og áhuga í kvennaliðin sín,“ segir Glódís.
Þýski boltinn Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mikil virðing fyrir Orra: Hárið stundum flækt en alltaf bros á vör Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Sjá meira