Eitt stærsta bílabíó sem haldið hefur verið á Íslandi Kristín Ólafsdóttir skrifar 22. september 2020 23:57 Úr kvikmyndinni Hárinu.
Eitt stærsta bílabíó sem haldið hefur verið hér á landi er á dagskrá úti á Granda í Reykjavík helgina 25.-28. september. RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, stendur fyrir bílabíóinu. Kvikmyndin Hárið (e. Hair) er ein af myndunum sem sýndar verða í bílabíóinu um helgina. Verkið ætti að vera flestum Íslendingum kunnugt enda oft verið sett upp í leikhúsum landsins. Bíógestir eru hvattir til að mæta í búningum í anda myndarinnar, auk þess sem Reykjavík Street Food verður með matarvagna á svæðinu og „ýmsar óvæntar uppákomur í bígerð“ að því er segir í tilkynningu. Ein kvikmynd er á dagskrá hvert kvöld bílabíósins og hefjast allar sýningar klukkan 21. Á dagskrá verða einnig: Ég er Gréta / I am Greta Heimildarmynd um hinn unga aðgerðarsinna Gretu Thunberg berst beinst á RIFF frá Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Um er að ræða persónulega heimildarmynd í leikstjórn sænska leikstjórans Nathan Grossman þar sem saga Gretu er rakin á hrífandi hátt frá upphafi baráttu hennar. Í myndinni fá áhorfendur innsýn í baráttu Gretu þar sem hún hittir ýmsa leiðtoga heims, skipuleggur fjöldamótmæli og undibýr ræðuhöld. Auk þess að kynnast hennar persónulegu högum og daglega lífi og því hvernig hún tekst á við mikið álag, endalaus ferðalög, gagnrýni almennings og það að vera orðin andlit baráttunnar gegn loftslagsbreytingum. Hunskastu út/Get the Hell Out Hunskastu út kemur hingað frá heimsfrumsýningu á Toronto-kvikmyndahátíðinni, einni stærstu hátíð í heimi en þetta fyrsta kvikmynd leikstjórans Wang I-Fan í fullri lengd. Hér er á ferðinni alvöru hryllingsmynd í anda Covid19 um mann sem reynist sá eini á vinnustað sínum sem er ónæmur fyrir banvænum vírus er breytir fólki í uppvakninga. Sputnik Þessi mynd er uppáhald dagskrárstjórans Frédéric Boyer og frumraun leikstjórans Egor Abramenko á þessu sviði. Hrollvekjandispennumynd sem gerist á hátindi kalda stríðsins. Áætlað var að frumsýna myndina á Tribeca hátíðinni í apríl síðastliðinum en hún er nú komin út í Rússalandi og hefur hlotið góða dóma meðal gagnrýnenda. Hér segir af leiðangursstjóra sóvesks geimskips sem kemst einn lífs af eftir misheppnaðan leiðangur. Í kjölfar þessað þekktur rússneskur sálfræðingur er fenginn til að meta andlega heilsu leiðangursstjórans verður ljóst að eitthvað hættulegt gæti hafa fylgt honum aftur til jarðar. Miðasala í Bílabíó RIFF er hafin á Riff.is.
Bíó og sjónvarp Reykjavík Mest lesið Sjö hættulegar gryfjur fyrir hjón og pör að falla í Áskorun Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Lífið Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Lífið Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Lífið Varð móðir sextán ára Lífið Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Lífið „Elska að hafa skipulagt kaos“ Tíska og hönnun Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Lífið Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lífið Lekker hæð listakonu til sölu Lífið Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu Frumsýning á Vísi: Segja þjóðinni loksins frá harðræðinu á vistheimilunum Ljósbrot meðal opnunarmynda í Cannes Hámhorfið: Hvað eru grafískir hönnuðir að horfa á? Cox segir Phoenix ömurlegan sem Napóleon Komu saman vegna þrjátíu ára afmælis Pulp Fiction Á slóðum Arabíu Lárens með Anthony Hopkins Keanu Reeves mun leika helsta keppinaut Sonic Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu Hámhorfið: Hvað eru landsliðskonur í knattspyrnu að horfa á? Fylgdi Mari Jaersk á æskuslóðir: „Hann stakk hníf inn í lungun á pabba tvisvar“ Rowling enn bitur út í Harry Potter-stjörnurnar Frumsýning á Vísi: Fyrsta kitlan úr Snertingu Bridget Jones 4 kemur út á næsta ári Mun túlka Springsteen Finna enn gríðarlega sterk áhrif Eurovision-myndarinnar Verður aftur laglega ljóskan Elle Woods Svar Íslands og Sviss við Forrest Gump mætir á skjáinn Hámhorfið: Hvað eru prestar landsins að horfa á? Blendnar tilfinningar á frumsýningu Oppenheimer í Japan Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 „Hann er með svona Connery áru yfir sér“ Spennuþáttaröðin Reykjavík Fusion í framleiðslu í sumar Báðar fylkingar House of the Dragon fá sína stiklu Bað hennar við sólsetrið á 100 mánaða afmælinu Nýir Star Wars þættir líta dagsins ljós Sagður vera næsti James Bond Sá Dune tvö hundruð sinnum og er búinn að fara nítján sinnum á Dune 2 í bíó Hámhorfið: Hvað eru listakonur landsins að horfa á? Heimaleikurinn með enn önnur verðlaunin í Glasgow Sjá meira