Skólabyrjun seinkað í von um bættan svefn barna Ólafur Björn Sverrisson skrifar 23. júní 2022 10:43 Snædís Valsdóttir er skólastjóri Vogaskóla. Reykjavíkurborg Nemendur á unglingastigi í Vogaskóla munu mæta klukkan 9:10 í skólann í stað 8:30 líkt og undanfarin ár. Um er að ræða tilraunaverkefni þar sem skoðað verður hvaða áhrif seinkun skólabyrjunar hefur á svefn, líðan og nám nemenda.
Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. Snædís Valsdóttir, skólastjóri í Vogaskóla, segir verkefnið spennandi. „Okkur fannst áhugavert að kanna hvort þetta gæti orðið okkar unglingum til hagsbóta. Þetta er náttúrulega bara tilraunaverkefni til eins árs og það er alltaf hægt að snúa til baka ef svo ber undir,“ er haft eftir Snædísi. Hún segir líkamsklukku unglinga vera þannig að þeir eigi betra með að sofna seinna og sofa aðeins lengur fram eftir. „Sumir óttast að tilraunin verði bara til þess að þeir fari seinna að sofa í stað þess að fá meiri svefn en rannsóknir benda til að þetta verði betri svefntími sem nýtist þeim betur. Meiri og betri gæðasvefn.“ Mikið í húfi Í fréttatilkynningu er einnig fjallað um rannsóknir sem sýna að helmingur nemenda í 10. bekk fái ekki nægan nætursvefn eða sjö klukkustundir eða meira. Fram kemur í gögnum frá Betri svefni að börn og unglingar sem sofa of stutt eigi erfiðara með einbeitingu, glími frekar við minnistruflanir, depurð og kvíða, nái sér frekar í pestir, hreyfi sig minna, séu frekar í ofþyngd og sýni aukna áhættuhegðun. Snædís segir erlendar rannsóknir sýna að þegar skólabyrjun sé seinkað lengist svefn unglinga. „Rannsóknir hafa líka sýnt að börn sem fá góðan svefn líður betur. Þau eru hraustari, eiga auðveldara með nám og stunda frekar íþróttir og hreyfingu. Þau upplifa síður kvíða og depurð, eiga auðveldara með félagsleg tengsl og eru almennt hamingjusamari. Það verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur út,“ sagði Snædís að lokum.
Svefn Skóla - og menntamál Reykjavík Grunnskólar Börn og uppeldi Tengdar fréttir Segir íslensk börn fara allt of seint að sofa „Þetta er bara vandamál hjá íslensku þjóðinni í dag. Börn eru að fara allt of seint að sofa,“ segir Ásgerður Guðmunds hjá Vinnuheilsu í viðtali við Ósk Gunnars á FM957. Hún segir ábyrgðina liggja hjá fullorðna fólkinu. 10. nóvember 2021 15:31 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira
Segir íslensk börn fara allt of seint að sofa „Þetta er bara vandamál hjá íslensku þjóðinni í dag. Börn eru að fara allt of seint að sofa,“ segir Ásgerður Guðmunds hjá Vinnuheilsu í viðtali við Ósk Gunnars á FM957. Hún segir ábyrgðina liggja hjá fullorðna fólkinu. 10. nóvember 2021 15:31