Skilyrði að strákarnir okkar séu með mótefni en þeir mega fara af hótelinu Sindri Sverrisson skrifar 26. nóvember 2021 14:00 Bjarki Már Elísson greindist með kórónuveirusmit í apríl og má keppa á EM í janúar. EPA-EFE/Khaled Elfiqi Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur tilkynnt hvaða smitvarnareglur gilda á EM karla í handbolta sem fram fer í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar.
Íslenska landsliðið leikur sína leiki í Búdapest, í stærstu handboltahöll Evrópu, og byrjar á leik við Portúgal 14. janúar. Það er eins gott að strákarnir okkar séu bólusettir gegn Covid-19, eða búnir að fá sjúkdóminn og þar með mynda mótefni, því samkvæmt reglunum sem EHF hefur nú sett er það skilyrði til að fá að spila á mótinu. Vísir spurði Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóra HSÍ, fyrr í þessum mánuði hvort að þetta gæti skapað vandræði fyrir Ísland. Hann sagði svo ekki vera. Allir leikmenn sem valdir hefðu verið í síðasta verkefni hefðu í það minnsta verið bólusettir. EHF segir að leikmenn verði skyldaðir til að fara í PCR-próf annan hvern dag en öfugt við það sem var á EM kvenna í Danmörku fyrir ári síðan þá verða þeir ekki lokaðir inni í búblu allt mótið. Þannig verður leikmönnum leyft að fara út af hóteli sínu, ekki bara til að fara á æfingar og spila leiki. Ef að leikmaður greinist með smit á mótinu þá verður hann sendur í einangrun. Liðsfélagar þurfa þá að fara í sóttkví en losna úr henni um leið og neikvætt sýni fæst úr smitprófi. Á síðasta stórmóti, HM í Egyptalandi í janúar, var engin krafa um bólusetningar enda var þá tiltölulega nýbyrjað að bólusetja fólk gegn Covid-19. Veiran hafði mikil áhrif á mótið og þurfti að skipta tveimur liðum út vegna hópsmita. EM karla fer fram dagana 13.-30. janúar, í Ungverjalandi og Slóvakíu. Ísland leikur sína leiki í Búdapest og er í riðli með Portúgal, Hollandi og Ungverjalandi.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Dagskráin í dag: Valur og Breiðablik mætast í úrslitum, enska B-deildin og LUÍH Sport Fleiri fréttir Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - HK 21-26 | HK úr fallsæti eftir sigur gegn Víkingi „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Línur teknar að skýrast og Valsmenn halda í vonina Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Haukar 28-31 | Haukar eiga montréttinn í Hafnarfirði Öruggt hjá Mosfellingum gegn KA Á förum frá Zwickau Blóð, sviti, tár og andvökunætur Guðmundar Handboltaparið flytur suður að tímabilinu loknu Patrekur tekur við kvennaliði Stjörnunnar Guðmundur segist bara hafa sagt sannleikann Ómar Ingi með stórskotasýningu í sigri Magdeburg Valsmenn unnu eins marks sigur í Rúmeníu Lærisveinar Rúnars lentu á hraðahindrun Enn fúll yfir ráðningu Dags og telur að hann vinni ekki verðlaun Línurnar klárar fyrir umspilið í Olís-deildinni „Við förum upp aftur“ KA valtaði yfir Víking í frestuðum leik Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA/Þór 26 - 23 | Norðankonur fallnar Sigvaldi tryggði Kolstad Noregsmeistaratitilinn Halldór slapp við fall og úrslitakeppnin klár Lið Halldórs látið spila eftir að áhorfandi lést og fjölskyldan horfði á FH sótti ekki gull í greipar Eyjamanna og toppbaráttan lifir enn góðu lífi Elvar Örn öflugur og Melsungen stefnir á Evrópu Reistad og Gidsel valin besta handboltafólk í heimi Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti