Verkföll komi spánskt fyrir sjónir í ljósi góðra launa Ólafur Björn Sverrisson skrifar 24. janúar 2023 22:51 Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Vilhelm Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar segir að stemning fyrir verkföllum virðist vera lítil innan ferðaþjónustunnar. Rekstraraðilar hafa leitað til samtakanna vegna starfsfólks sem vilji skrá sig úr Eflingu.
Atkvæðagreiðsla meðal tæplega 300 félagsmanna Eflingar sem starfa á sjö hótelum Íslandshótela og Fosshótel hófst á hádegi en ótímabundið verkfall hefst á hádegi sjöunda febrúar, eftir tvær vikur, verði það samþykkt. Atkvæðagreiðslu lýkur í næstu viku. Deiluaðilar funduðu sameiginlega í aðeins eina mínútu í dag og segist ríkissáttasemjari aldrei hafa kynnst deilu í öðrum eins hnút. „Það hefur komið okkur á óvart hvað það eru mikið af starfsfólki úr Eflingu sem hafa komið að máli við sína yfirmenn og rekstraraðila og eru að spyrjast fyrir um það hvort það geti sagt sig úr Eflingu eða skipt um stéttarfélag. Þetta er eitthvað sem ég verð að játa að kom mér mjög á óvart og við höfum ekki séð eða fundið fyrir áður,“ segir Jóhannes Þór sem var til viðtals í Reykjavík síðdegis í dag. Hann segir stöðuna innan ferðaþjónustunnar óþægilega, í ljósi þess að aðrir aðilar hafa samið um kjarasamninga og samþykkt með miklum meirihluta atkvæða félagsmanna. „Það væri óskandi að fólk fengi að kjósa bara um þennan samning sem hefur legið á borðinu, þá með þeirri aðlögun sem hægt er að gera fyrir starfsfólk hjá Eflingu.“ Hann segist hafa reynslu af verkfalli ásamt kennurum og segir reynsluna þá að verkföll séu ömurlegt hlutskipti fyrir alla sem eiga hlut að máli. Viðtalið við Jóhannes Þór má hlusta á í heild sinni hér að neðan: Launavísitala ferðaþjónustu hækkað mest „Maður finnur á síðustu vikum að stemningin fyrir verkfalli er ekki mikil. Sem er kannski ekki skrýtið þegar fólk sér að um 80 prósent á almenna vinnumarkaðnum hafa samþykkt þessa fyrri samninga,“ segir Jóhannes Þór. Hann kveðst leiður yfir því hvernig umræðan hafi verið að undanförnu. „Það sem maður heyrir stundum og maður sér í kommentabrjálæðinu á internetinu er að íslensk ferðaþjónusta eigi að borga mannsæmandi laun, svo er það ekkert útskýrt frekar,“ segir hann og svarar því þannig að íslensk hótel og veitingahús borgi starfsfólki hæstu laun á klukkustund í Evrópu. „Ef við tökum kaupmátt inn í það þá greiða íslensk hótel og veitingahús fimmtu hæstu laun í Evrópu. Þegar við horfum á síðasta launatímabil, í lífskjarasamningum, og horfum á það í hvaða atvinnugreinum launavísitala hefur hækkað mest, þá hefur hún hækkað mest í hótelum og veitingahúsum. Vísitalan hefur hækkað um 39 prósent þar en er undir 30 prósent í öðrum greinum.“ Því komi það spánskt fyrir sjónir að verið sé að boða verkföll nú „og að verið sé að halda því fram að þessi fyrirtæki séu á einhvern hátt ekki að standa sig hvorki í innlendum né erlendum samanburði.“
Ferðamennska á Íslandi Kjaramál Kjaraviðræður 2022-23 Vinnumarkaður Reykjavík Tengdar fréttir Starfsfólk hafi verið illa upplýst og það valið af Eflingu Framkvæmdarstjóri Íslandshótela segir Eflingu hafa dregið upp mjög einsleita mynd af stöðunni fyrir starfsfólk sem því miður hafi verið illa upplýst. Hart sé að ráðast á eitt fyrirtæki en þau hafi verið valin til að ná þeirri niðurstöðu sem Efling óskar. Hann býst ekki við því að starfsfólk samþykki verkfall en ef af því verður þurfi að koma í ljós hvort loka þurfi hótelum. 24. janúar 2023 18:15 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Innlent Fleiri fréttir Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Sjá meira
Starfsfólk hafi verið illa upplýst og það valið af Eflingu Framkvæmdarstjóri Íslandshótela segir Eflingu hafa dregið upp mjög einsleita mynd af stöðunni fyrir starfsfólk sem því miður hafi verið illa upplýst. Hart sé að ráðast á eitt fyrirtæki en þau hafi verið valin til að ná þeirri niðurstöðu sem Efling óskar. Hann býst ekki við því að starfsfólk samþykki verkfall en ef af því verður þurfi að koma í ljós hvort loka þurfi hótelum. 24. janúar 2023 18:15