Þrír framlengja í Keflavík

Deane Williams verður áfram í herbúðum Keflvíkinga.
Deane Williams verður áfram í herbúðum Keflvíkinga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Körfuknattleiksmennirnir Deane Williams, Arnór Sveinsson og Magnús Pétursson framlengdu allir samning sinn við Keflavík í dag um eitt ár.

Williams hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar í vetur en Arnór og Magnús eru ungir og uppaldir Keflvíkingar.

Á heimasíðu Keflavíkur kemur fram að fleiri fréttir muni berast úr herbúðum félagsins á næstu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert