Metfjöldi rostunga skráður á rússneska heimskautinu Kristján Már Unnarsson skrifar 25. september 2021 09:20 Frá rostunganýlendu á Svalbarða. Getty/Peter Orr. Rússneskir vísindamenn hafa skýrt frá metfjölda skráðra Atlantshafs-rostunga á Frans Jósefslandi, eyjaklasa austur af Svalbarða. Jafnframt segjast þeir hafa fundið stærstu einstöku rostunganýlendu í sögu heimskautsrannsókna á einni af eyjum rússneska eyjaklasans.
Norski fréttamiðillinn The Barents Observer fjallar um málið og vitnar til fréttatilkynningar Þjóðgarðamiðstöðvar norðurslóða Rússlands, sem birt var fyrr í mánuðinum. Þar er greint frá leiðangri rússneskra náttúrufræðinga sem kominn væri aftur til Arkhangelsk úr norðuríshafinu eftir umhverfisvöktun annað árið í röð þar sem skráðar voru sjaldgæfar tegundir dýra, jurta og sveppa. Vísindamennirnir skoðuðu 34 eyjar á Frans Jósefslandi, Novaya Zemlya og Victoriu-eyju. Með gögnum úr myndavélum, sem komið hafði verið fyrir árið áður, uppgötvuðu þeir meðal annars nýjar fæðustöðvar rostunganna. Þá voru rostungar merktir og gervitunglasendum komið fyrir á sextán dýrum til að fylgjast með ferðum þeirra. Til að telja fjölda rostunga flugu vísindamennirnir drónum yfir stærstu rostunganýlendur eyjanna. Samkvæmt bráðabirgðatölum skráðu þeir yfir sjö þúsund rostunga, tvöfalt fleiri en í fyrra. Þá fundu þeir einnig stærsta einstaka búsvæði rostunga í sögu norðurheimskautsrannsókna, á nyrstu eyju Frans Jósefslands, Eva-Liv eyjunni. Frá vísindaleiðangri til Frans Jósefslands í fyrra. Skip frá rússneska norðurflotanum sigldi þá með leiðangursmenn.Mynd/Rússneski norðurflotinn. Sum svæðanna, sem rannsökuðu voru, eru þjóðgarðar í Rússlandi. Að sögn leiðangursstjórans, Svetlönu Artemyeva, er umráðasvæði þjóðgarðanna ákjósanlegt til að fylgjast með Atlantshafs-rostungnum, þar sem að minnsta kosti einn stór hópur tegundarinnar býr þar. Þá er eyjaklasinn sagður nokkuð þægilegur til að fylgjast með kópum þar sem vegalengdir eru litlar og mikill fjöldi rostungalátra. Rannsóknir benda til að sérstakur stofn rostunga hafi verið við Ísland við landnám, sem fjallað var um í þessari frétt Stöðvar 2 árið 2018: Hér má sjá rostung á Hornafirði í vikunni:
Rostungurinn Valli Norðurslóðir Rússland Dýr Vísindi Umhverfismál Tengdar fréttir Rostungur sökkti gúmbát rússneska norðurflotans Sjóliðar rússneska norðurflotans og leiðangursmenn frá rússneska landfræðifélaginu voru hætt komnir þegar rostungur réðst á bát þeirra og sökkti þegar þeir reyndu landtöku á eyju í Norður-Íshafi. 29. september 2019 10:21 Sérstakur stofn rostunga hvarf við landnám Íslands Tímamótarannsókn bendir til að sérstakur stofn rostunga hafi verið á Íslandi sem hvergi finnst annars staðar í heiminum og að stofninn hafi horfið við landnám. 22. desember 2018 20:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Erlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Erlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Innlent Eitruð blanda þegar spilling og skipulagsmál fara saman Innlent Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Erlent Fleiri fréttir Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Kynferðisafbrotamanni bannað að nota gervigreind Varnarmál efst á baugi nýs formanns Ætla að endurreisa Børsen „sama hvað“ Sjá meira
Rostungur sökkti gúmbát rússneska norðurflotans Sjóliðar rússneska norðurflotans og leiðangursmenn frá rússneska landfræðifélaginu voru hætt komnir þegar rostungur réðst á bát þeirra og sökkti þegar þeir reyndu landtöku á eyju í Norður-Íshafi. 29. september 2019 10:21
Sérstakur stofn rostunga hvarf við landnám Íslands Tímamótarannsókn bendir til að sérstakur stofn rostunga hafi verið á Íslandi sem hvergi finnst annars staðar í heiminum og að stofninn hafi horfið við landnám. 22. desember 2018 20:00