„Hægt að treysta því að verðbólga verður ekki viðvarandi hér“ Sunna Sæmundsdóttir og Heimir Már Pétursson skrifa 22. júní 2022 11:45 Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri en bankinn birti svarta skýrslu um viðskiptajöfnuð í dag. Vísir/Vilhelm Skörp vaxtahækkun var nauðsynleg til að ná tökum á verðbólgunni að sögn seðlabankastjóra en stýrvextir voru í dag hækkaðir um eitt prósentustig. Með þessu séu einnig send skýr skilaboð inn í komandi kjaraviðræður um að verðbólga verði ekki viðvarandi hér á landi.
Stýrivextir voru áður 3,75 prósent og standa því nú í 4,75 prósentum og hafa ekki verið hærri í fimm ár. Hækkunin er meiri en markaðsaðilar höfðu búist við og spáðu bæði Íslandsbanki og Landsbanki að vextir yrðu hækkaðir um 0,75 prósentustig. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að nauðsynlegt hafi verið að bregðast skarpt við verðbólgu sem hækkar enn og mælist nú 7,6 prósent. „Við teljum að það sé betra að bregðast fljótt við og þá vonandi getum við fremur lækkað vexti fyrr,“ segir Ásgeir. Hann telur heimilin standa ágætlega til að ráða við hækkunina. „En ég skal taka fram að við erum að vinna að þessu fyrir heimilin. Verðbólga kemur illa við heimilin. Hátt fasteignaverð kemur illa við heimilin. Við erum núna að vinna í haginn fyrir næstu kjarasamninga. Að aðilar vinnumarkaðarins sjái það að verðbólga er ekki að fara vera til framtíðar á Íslandi. Við ætlum að taka á vandanum. Þannig að þegar kemur að næstu kjarasamningum er hægt að treysta því að verðbólga verður ekki viðvarandi hér.“ Seðlabankastjóri kallar eftir auknu framboði á fasteignamarkaði.vísir/Vilhelm Hækkun húsnæðisverðs vegur þungt í verðbólgunni og Ásgeri segir nauðsynlegt að auka framboð á markaði. „Það bara vantar eignir. Seðlabankinn getur ekki eytt þessu vandamáli. Við getum aðeins reynt að hægja á markaðnum til þess að fólk sé ekki að fara fram úr sér.“ Peningastefnunefnd telur líklegt að vextir verði hækkaðir enn frekar og munu ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum skipta miklu um hversu hátt þeir þurfi að fara. Þá er búist við aukinni verðbólgu en Ásgeir telur afar ólíklegt að hún fari upp í tveggja stafa tölu. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.vísir/Vilhelm Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði að loknum ríkisstjórnarfundi í dag að hækkunin hafi verið viðbúin. „Þess vegna höfum við nú þegar brugðist við í þessu ríkisfjármálalega samhengi og erum með aðgerðir í undirbúningi vegna húsnæðisverðshækkana og viljum auka framboð. En ég hef trú á því að við getum náð tökum á þessari stöðu.“
Seðlabankinn Efnahagsmál Kjaramál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Hítará hefur fundið sér nýjan farveg Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira