Gabon varð í kvöld fjórða liðið til þess að vinna 1:0-sigur á Afríkumótinu í knattspyrnu á öðrum leikdegi þess þegar liðið lagði Kómorós í C-riðlinum.
Aaron Salem Boupendza skoraði sigurmark Gabon eftir rétt rúmlega stundarfjórðungs leik.
Gabon var án fyrirliða síns og mesta markaskorara, Pierre-Emerick Aubameyang, í kvöld þar sem hann smitaðist af kórónuveirunni á dögunum.
Fyrr í dag hafði Marokkó unnið 1:0-sigur á Gana í C-riðlinum og þá lauk báðum leikjum B-riðilsins í dag einnig með 1:0-sigrum.
Senegal vann þar Simbabve og Gínea lagði Malaví.