Sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi að störfum í Jemen Heimsljós 28. október 2020 14:01 Kolbrún Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi er að störfum á meðferðardeild fyrir einstaklinga sem veikjast af COVID-19 í Aden í suðurhluta Jemen. „Með stuðningi utanríkisráðuneytisins og Mannvina Rauða krossins getur Rauði krossinn á Íslandi stutt við jemenska Rauða hálfmánann í aðgerðum sínum, bæði í baráttunni gegn COVID-19 en einnig afleiðinga vopnaðra átaka síðastliðinna ára,“ segir í frétt frá Rauða krossinum. Kolbrún ÞorsteinsdóttirRauði krossinn Vegna viðvarandi átaka og skorts á sjúkragögnum hafa margar heilbrigðisstofnanir neyðst til að loka í Jemen. Heilbrigðiskerfið á í erfiðleikum með að veita hundruð þúsunda einstaklinga grunnþjónustu og lífi þeirra er ógnað vegna læknanlegra sjúkdóma, vannæringar og stríðstengdra áverka, að því er fram kemur í fréttinni. „Skortur á rafmagni og eldsneyti og mikil verðbólga gerir það að verkum að matur, lyf og aðrar nauðsynjavörur eru of dýrar fyrir flesta íbúa landsins og gerir erfitt líf af völdum vopnaðra átaka enn erfiðara,“ segir þar. Heilbrigðiskerfið í Jemen er í molum eftir stríðið og hvergi hafa fleiri látist hlutfallslega af völdum veirunnar eftir afar erfiða fyrstu bylgju sjúkdómsins þar í landi. Meðferðardeildin sem Kolbrún starfar á er meðal annars útbúin 60 rúmum fyrir sjúklinga, röntgenherbergi, legudeildum, hágæslu, aðstöðu fyrir forgangsröðun sjúklinga og rannsóknarstofu. Nokkur tonn af sjúkragögnum og búnaði voru flutt á staðinn. Kolbrún hefur nú þegar hafið störf á deildinni og verður fram í janúar. Fyrir tveimur árum fór hún sem sendifulltrúi á vegum Rauða krossins til Cox´s Bazar í Bangladess. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Jemen Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Hjálparstarf Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Innlent Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Niðri fyrir vegna Útlaganna Innlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Erlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Jemen Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Hjálparstarf Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Innlent Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Niðri fyrir vegna Útlaganna Innlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Erlent