Fótbolti

Dramatískt jafntefli í Sviss | Allt galopið í G-riðli

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Luis Muriel skoraði jöfnunarmark Atalanta beint úr aukaspyrnu.
Luis Muriel skoraði jöfnunarmark Atalanta beint úr aukaspyrnu. Christian Kaspar-Bartke/Getty Images

Öllum átta leikjum kvöldsins er nú lokið í Meistaradeild Evrópu. Atalanta missteig sig í baráttunni í F-riðli er liðið gerði 3-3 jafntefli gegn Young Boys og það er allt galopið í G-riðli eftir úrslit kvöldsins, en þar eiga öll fjögur liðin möguleika á sæti í 16-liða úrslitum.

Duvan Zapata kom Atalanta yfir gegn Young Boys strax á tíundu mínútu áður en Theoson Jordan Siebatcheu jafnaði metin fyrir hálfleik.

Jose Luis Palomino kom Atalanta yfir á ný snemma í seinni hálfleik, en mörk frá Silvan Hefti og Vincent Sierro komu heimamönnum í Young Boys í 3-2 þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka.

Það var svo Luis Muriel sem jafnaði metin á 88. mínútu beint úr aukaspyrnu eftir að hafa komið inn á sem varamaður sérstaklega til að taka spyrnuna. Niðustaðan varð því 3-3, en jafnteflið þýðir að veik von Young Boys um 16-liða úrslit er úr sögunni. Atalanta er hins vegar á leið í hreinan úrslitaleik gegn Villareal í lokaumferðinni.

Í G-riðli vann Lille 1-0 sigur gegn Salzburg og Sevilla vann 2-0 gegn Wolfsburg. Úrslitin þýða það að Lille er með átta stig fyrir lokaumferðina, Salzburg sjö, Sevilla sex og Wolfsburg fimm. 

Það eiga því öll liðin möguleika á sæti í 16-liða úrslitum fyrir lokaumferðina, en þá mætast Salzburg og Sevilla annars vegar og hins vegar Wolfsburg og Lille.

Úrslit kvöldsins

E-riðill

Dynamo Kiev 1-2 Bayern München

Barcelona 0-0 Benfica

F-riðill

Villareal 0-2 Manchester United

Young Boys 3-3 Atalanta

G-riðill

Lille 1-0 Salzburg

Sevilla 2-0 Wolfsburg

H-riðill

Chelsea 4-0 Juventus

Malmö 1-1 Zenit




Fleiri fréttir

Sjá meira


×