Óskuðu eftir tveggja vikna gæsluvarðhaldi yfir báðum mönnunum Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. september 2022 16:10 Karl Steinar Valsson segir í samtali við fréttastofu að óskað hafi verið eftir tveggja vikna gæsluvarðhaldi yfir báðum mönnunum. Vísir/Vilhelm Lögregla fór fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um skipulagningu hryðjuverks. Héraðsdómur féllst aðeins á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir öðrum þeirra en úrskurðaði hinn í einnar viku gæsluvarðhald.
Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um vopnaframleiðslu og skipulagningu hryðjuverks. Annar þeirra var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald en hinn í einnar viku varðhald. Tveir menn til viðbótar voru handteknir í aðgerðum lögreglu á miðvikudag en sleppt úr haldi. Tíminn sem mennirnir tveir hafa verið úrskurðaðir í varðhald hefur verið til nokkurrar umræðu á samfélagsmiðlum og fólk velt fyrir sér hvers vegna varðhaldið vari svo stuttan tíma að þeirra mati. Einnar viku gæsluvarðhald yfir meintum hryðjuverkamanni. Það er eitthvað hérna sem ekki gengur upp.— pallih (@pallih) September 24, 2022 Tja það er einhver ástæða fyrir stuttu gæsluvarðhaldi??— Þórir Grétar (@ThorirGretar) September 24, 2022 Það er allavega galið að setja bara viku gæsluvarðhald á einhvern sem er að plana fjöldamorð.— Snæbjörn (@artybjorn) September 24, 2022 Stórundarlegt allt saman. Ef menn voru með raunverulegt hryðjuverk planað af hverju bara vika og 2 í gæsluvarðhald? Burðardýr fá lengri tíma.— Kleópatra Mjöll (@greatkleo) September 24, 2022 Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra sagði í samtali við fréttastofu í dag að óskað hafi verið eftir tveggja vikna gæsluvarðhaldi yfir báðum mönnunum en Héraðsdómur aðeins fallist á þá kröfu yfir einum mannanna. Það sé hefðbundið að óska eftir tveggja vikna varðhaldi fyrst um sinn í málum sem þessum og svo eftir framlengingu þegar meira er komið í ljós. Lögregla hefur ekki viljað veita viðtöl vegna málsins og að sögn hennar er rannsókn þess í fullum gangi. Að mörgu sé að hyggja og takmarkaður tími sé til rannsóknar, sérstaklega vegna lengdar gæsluvarðhaldsins yfir öðrum manninum, sem rennur út á miðvikudag. Ómar Örn Bjarnþórsson, lögmaður mannsins sem var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald, sagði í samtali við fréttastofu í dag að fólk, þar á meðal þingmenn, færi fram með of miklu offorsi í málinu. Það þyrfti að anda með nefinu og sjá hvort grunsemdir lögreglu séu á rökum reistar. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði annar mannanna sem nú er í varðhaldi verið handtekinn á þriðjudag fyrir rúmri viku í tengslum við rannsókn lögreglu á framleiðslu og sölu skotvopna. Hann var þá settur í vikulangt gæsluvarðhald og látinn laus á þriðjudag. Eftir það virðist sem mennirnir hafi hafið samskipti sem lögregla telur benda til að þeir hafi verið að skipuleggja hryðjuverk. Heimildir fréttastofu herma að í samskiptum mannanna hafi meðal annars verið rætt um fjöldamorð í samhengi við lögreglu og stofnanir ríkisins.
Lögreglumál Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Tengdar fréttir Sérsveit hafði afskipti af einum mannanna þegar hann var tólf ára við leik Einn mannanna sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi komst í kast við sérsveit ríkislögreglustjóra fyrir þrettán árum. Hann var þá tólf ára gamall og hafði verið að leik þegar sérsveit var kölluð til vegna hans. 24. september 2022 10:33 Með auknum heimildum geti lögregla fylgst með fólki sem ekkert hafi af sér gert Þingmaður segir frumvarp dómsmálaráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu þýða það að lögregla geti haft eftirlit með fólki sem ekki hefur brotið af sér. Lögregla hafi þegar mjög rúmar heimildir til rannsóknar og eftirlits með almennum borgurum. 23. september 2022 22:31 Varð fyrir óþægindum vegna nafnbirtingar fjölmiðils Í tilkynningu sem barst fjölmiðlum í kvöld biður Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra fjölmiðla um að sýna aðgát í fréttaflutningi. 23. september 2022 22:25 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Erlent Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Erlent Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Innlent Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Innlent Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Innlent Kanna hvar Perry fékk ketamínið Erlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Innlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Innlent Fleiri fréttir Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Sjá meira
Sérsveit hafði afskipti af einum mannanna þegar hann var tólf ára við leik Einn mannanna sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi komst í kast við sérsveit ríkislögreglustjóra fyrir þrettán árum. Hann var þá tólf ára gamall og hafði verið að leik þegar sérsveit var kölluð til vegna hans. 24. september 2022 10:33
Með auknum heimildum geti lögregla fylgst með fólki sem ekkert hafi af sér gert Þingmaður segir frumvarp dómsmálaráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu þýða það að lögregla geti haft eftirlit með fólki sem ekki hefur brotið af sér. Lögregla hafi þegar mjög rúmar heimildir til rannsóknar og eftirlits með almennum borgurum. 23. september 2022 22:31
Varð fyrir óþægindum vegna nafnbirtingar fjölmiðils Í tilkynningu sem barst fjölmiðlum í kvöld biður Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra fjölmiðla um að sýna aðgát í fréttaflutningi. 23. september 2022 22:25