Flösku aftur grýtt í Payet og óöldin lengist í frönskum fótbolta Sindri Sverrisson skrifar 22. nóvember 2021 11:00 Dimitri Payet fékk flösku í hausinn í Lyon í gærkvöld. Skjáskot Ólæti áhorfenda halda áfram að varpa skugga á leiktíðina í frönsku 1. deildinni í fótbolta. Í gær varð að blása af leik Lyon og Marseille eftir að flösku var kastað í höfuð Dimitri Payet á fimmtu mínútu leiksins.
Þetta er í annað sinn á leiktíðinni þar sem að Payet, sem er landsliðsmaður Frakklands og fyrrverandi leikmaður West Ham, fær flösku í hausinn í leik með Marseille. Payet var að taka hornspyrnu þegar stuðningsmaður heimamanna í Lyon kastaði flösku í höfuð hans. Payet féll til jarðar en gat svo stigið upp eftir að búið var að huga að honum. Dómari leiksins sendi bæði lið til búningsklefa. Supporting our captain, @dimpayet17 #OLOM | pic.twitter.com/9rcwy6RoGr— Olympique de Marseille (@OM_English) November 21, 2021 Eftir um 75 mínútna bið tilkynnti vallarþulur að leikurinn myndi hefjast að nýju og leikmenn Lyon skokkuðu út á völl. Það gerðu Payet og félagar í Marseille hins vegar ekki enda mun Payet hafa verið í áfalli yfir því sem gerðist. „Hann er andlega særður“ Á endanum tók dómarinn þá ákvörðun að leikurinn hæfist ekki að nýju og óvíst er hvenær hann verður kláraður. Strax í upphitun varð Payet fyrir aðkasti þegar stuðningsmenn Lyon létu niðrandi athugasemdum rigna yfir hann. „Hann er andlega særður,“ sagði Pablo Longoria, forseti Marseille. „Það sem er í gangi hérna er ekki eðlilegt. Við höfum alltaf fordæmt allt ofbeldi,“ sagði Longoria. Áhorfandinn sem henti flöskunni fannst og var honum vikið af leikvanginum, eftir að hafa fengið kinnhest frá öðrum stuðningsmanni Lyon. The Lyon fan who threw the bottle at Dimitri Payet was slapped by his own fans after the game with Marseille was suspended.pic.twitter.com/TLsNGoXFkw— Sam Street (@samstreetwrites) November 21, 2021 Jean-Michel Aulas, forseti Lyon, sagði að í ljósi þess að hinn brotlegi hefði verið handtekinn hefði „engin hætta verið á að aftur skapaðist hættuástand“, og kenndi hann Marseille um að leikurinn hefði ekki hafist að nýju. Síðast kastaði Payet flöskunni til baka Payet fékk einnig flösku í hausinn í leik gegn Nice í ágúst, og svaraði þá fyrir sig með því að kasta flöskunni til baka. Þá sauð allt upp úr, áhorfendur brutu sér leið inn á völlinn og flauta þurfti leikinn af. Nokkur fleiri dæmi eru um mikil ólæti stuðningsmanna á leikjum í frönsku deildinni í haust. Unglingur meiddist þegar sæti var kastað á leik PSG og Lyon í september. Stuðningsmenn réðust inn á völlinn í leik Lens og Lille í sama mánuði eftir að áflog brutust út í stúkunni. Í október tafðist leikur Saint-Etienne og Angers um klukkutíma eftir að stuðningsmenn brutust inn á völlinn og blysum var kastað. Fleiri dæmi mætti nefna. „Eftir svona kvöld og miðað við þá stöðu sem við erum í þá held ég að franskur fótbolti þurfi að íhuga vandlega hvernig við komum í veg fyrir þessi atvik,“ sagði Longoria.
Franski boltinn Mest lesið Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Handbolti Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti NFL tekur ekki undir umdeild ummæli Butker Sport Upphafshöggi frestað vegna banaslyss skammt frá vellinum Golf Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar Körfubolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fótbolti Fleiri fréttir Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Sjá meira