Sagði óvænt upp í Breiðholti

Borche Ilievski hefur látið af störfum í Breiðholti.
Borche Ilievski hefur látið af störfum í Breiðholti. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Borche Ilievski hefur sagt upp störfum sem þjálfari karlaliðs ÍR í körfuknattleik. Þetta staðfesti hann í samtali við mbl.is í morgun.

ÍR hefur byrjað tímabilið illa í úrvalsdeild karla, Subway-deildinni, og hafa ÍR-ingar tapað fyrstu þremur deildarleikjum sínum.

Borche tók við liði ÍR árið 2015 en hann kom liðinu í úrslit Íslandsmótsins tímabilið 2018-19 þar sem liðið tapaði í oddaleik fyrir KR.

Óvíst er hver mun taka við liðinu af Borche sem hefur einnig þjálfað KFÍ, Tindastól, Bolungarvík og Breiðablik hér á landi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert