SaltPay segir upp starfsfólki Eiður Þór Árnason skrifar 19. apríl 2021 14:15 Alþjóðlega greiðslumiðlunarfyrirtækið SaltPay festi kaup á meirihluta í Borgun í fyrra. Vísir/Vilhelm Greiðslufyrirtækið SaltPay, áður Borgun, hefur ráðist í uppsagnir og hyggst fækka starfsfólki sínu umtalsvert hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu hafa breytingarnar alls áhrif á um fjórðung starfsliðsins en verður sumum boðið að þiggja önnur störf hjá fyrirtækinu.
Liggur því ekki endanlega fyrir hve margir missa vinnuna að svo stöddu en starfsfólki var tilkynnt um aðgerðirnar í dag. Í lok nóvember störfuðu 126 manns hjá félaginu hér á landi og má því ætla að skipulagsbreytingarnar hafi áhrif á um og yfir 30 manns. Eftir að SaltPay keypti ráðandi hlut í Borgun í fyrra hefur verið greint frá því að tíu starfsmönnum hafi verið sagt upp í júlí síðastliðnum, þrettán í september og 29 í nóvember. Fram kemur í tilkynningu frá SaltPay að nú sé aðallega um að ræða starfsfólk sem starfaði við að þróa og viðhalda eldra greiðslukerfi Borgunar. Ákvörðunin er sögð ekki hafa nein áhrif á viðskiptavini SaltPay á Íslandi. Þurft að skipta út gömlu greiðslukerfi Gengið var frá kaupum alþjóðlega greiðslumiðlunarfyrirtækið SaltPay á tæplega 96% eignarhlut í Borgun í júlí í fyrra. Keypti félagið 63,5% hlut Íslandsbanka og 32,4% hlut Eignarhaldsfélagsins Borgun, sem er meðal annars í eigu Stálskipa og Einars Sveinssonar fjárfestis. Að sögn SaltPay hefur frá þeim tíma staðið yfir rýning á öllum kerfum fyrirtækisins og hafin þróun á nýjum lausnum. „Greiðslukerfi Borgunar var í grunninn byggt á kerfi sem orðið er hátt í fjörutíu ára gamalt og ljóst var frá upphafi að því þyrfti að skipta út. Sú vinna hefur staðið yfir og er komin á það stig að ekki verður þörf fyrir allt það starfsfólk sem sinnt hefur gamla kerfinu. Af þessu leiðir að fækkun verður á hugbúnaðarsviði, auk þess sem aukin sjálfvirkni og bætt tækni hefur áhrif til fækkunar á öðrum sviðum.“ „Rekstur fyrirtækisins hefur verið þungur á síðustu árum en þær aðgerðir sem gripið hefur verið til munu þýða að ekki þurfi að koma til frekari uppsagna.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Greiðslumiðlun Vinnumarkaður Tengdar fréttir Edu og Marcos taka við af Sæmundi hjá Borgun Sæmundur Sæmundsson, forstjóri Borgunar hefur ákveðið að stíga til hliðar og munu þeir Eduardo Pontes og Marcos Nunes taka sameiginlega við starfi forstjóra. Stjórn Borgunar gaf frá sér tilkynningu þess efnis í dag. 15. júlí 2020 17:20 29 starfsmönnum Borgunar sagt upp 29 starfsmönnum Borgunar var sagt upp í hópuppsögn í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 30. nóvember 2020 10:09 Ráku 10 en vilja ráða 60 Vísir fékk fjölmargar ábendingar um hreinsun í efstu lögum fyrirtækisins í gær, sem ekki var drepið á í tilkynningunni sem Borgun sendi frá sér um brotthvarf forstjórans. 16. júlí 2020 13:18 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Polestar 4 kominn í Polestar Reykjavík – umhverfisvænasti bíll Polestar Samstarf Fleiri fréttir Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Sjá meira
Edu og Marcos taka við af Sæmundi hjá Borgun Sæmundur Sæmundsson, forstjóri Borgunar hefur ákveðið að stíga til hliðar og munu þeir Eduardo Pontes og Marcos Nunes taka sameiginlega við starfi forstjóra. Stjórn Borgunar gaf frá sér tilkynningu þess efnis í dag. 15. júlí 2020 17:20
29 starfsmönnum Borgunar sagt upp 29 starfsmönnum Borgunar var sagt upp í hópuppsögn í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 30. nóvember 2020 10:09
Ráku 10 en vilja ráða 60 Vísir fékk fjölmargar ábendingar um hreinsun í efstu lögum fyrirtækisins í gær, sem ekki var drepið á í tilkynningunni sem Borgun sendi frá sér um brotthvarf forstjórans. 16. júlí 2020 13:18