Bakvörðurinn skoraði langþráð mark

Alfons Sampsted í Evrópuleik Bodö/Glimt gegn Val á Hlíðarenda í …
Alfons Sampsted í Evrópuleik Bodö/Glimt gegn Val á Hlíðarenda í sumar. mbl.is/Árni Sæberg

Alfons Sampsted, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði í dag sitt fyrsta mark fyrir Noregsmeistarana Bodö/Glimt en þetta var hans 52. leikur með liðinu í norsku deildakeppninni og bikarnum.

Alfons kom Bodö/Glimt í 2:0 gegn Alta á útivelli í þriðju umferð norsku bikarkeppninnar og honum var síðan skipt af velli á 76. mínútu. Bodö/Glimt vann leikinn 2:1 og er því komið í sextán liða úrslit bikarkeppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert