fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fréttir

Tveir ölvaðir ökumenn valdir að umferðaróhöppum

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 5. desember 2022 05:22

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um klukkan 18 í gær lentu tvær bifreiðar í árekstri í Kópavogi. Annar ökumaðurinn, tjónvaldur, var handtekinn á vettvangi þar sem hann er grunaður um ölvun við akstur. Hann var vistaður í fangageymslu. Á áttunda tímanum varð annað umferðaróhapp í Kópavogi þar sem ökumaður, tjónvaldur, er grunaður um ölvun við akstur. Sá var einnig handtekinn.

Tveir ökumenn til viðbótar voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Annar þeirra neitaði ítrekað að láta öndunarsýni í té og var því sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.

Á sjöunda tímanum í gær var tilkynnt um eld í húsnæði í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Minniháttar tjón varð en talið er að eldsupptökin hafi verið í þvottavél.

Tilkynnt var um þjófnað á fartölvu og fleiri munum úr bifreið í gærkvöldi. Hún var ólæst og því hægur leikur fyrir þjófinn að láta greipar sópa.

Í Miðborginni var tilkynnt um rúðubrot í verslun á fjórða tímanum í nótt. Lögreglan hafði afskipti af manni, sem var nærri vettvangi, og viðurkenndi hann að hafa brotið rúðuna.

Í Breiðholti var einn handtekinn á ellefta tímanum en hann er grunaður um líkamsárás. Hann var vistaður í fangageymslu. Upplýsingar liggja ekki fyrir um meiðsli árásarþolans.

Í Kópavogi var tilkynnt um aðfinnsluvert aksturslag bifreiðar á þriðja tímanum í nótt. Bifreiðin reyndist vera ótryggð og voru skráningarnúmerin því tekin af henni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miklir fjárhagserfiðleikar hjá körfuknattleiksdeild UMFN

Miklir fjárhagserfiðleikar hjá körfuknattleiksdeild UMFN
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir áhyggjum af vanþekkingu forsetaframbjóðenda

Lýsir yfir áhyggjum af vanþekkingu forsetaframbjóðenda
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorgerður Katrín las Bjarna pistilinn: „Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér“

Þorgerður Katrín las Bjarna pistilinn: „Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað