Heiðar Helgu sá eini sem hefur skorað hjá enska landsliðinu á enskri grundu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2020 14:01 Eiður Smári Guðjohnsen og Pétur Marteinsson fagna Heiðari Helguson á Manchetser mótinu 2004 þar sem Heiðar skoraði öll þrjú mörk íslenska landsliðsins þar af eitt þeirra á móti Englandi. Getty/Barrington Coombs
Íslenska karlalandsliðið sækir Englendinga heim í kvöld en íslensku strákarnir enda Þjóðadeildina og landsliðsárið með leik á sjálfum Wembley. Íslenska landsliðið hefur aðeins einu sinni mætt aðalliði Englendinga á enskri grundu og það var á City of Manchester leikvanginum í Manchester í júní 1994. Heiðar Helguson skoraði eina mark íslenska liðsins í leiknum en verður vonandi ekki áfram einn í klúbbnum eftir leik Englands og Íslands á Wembley í kvöld. Englendingar voru þarna nokkrum dögum frá því að spila á EM í Portúgal en fyrstu leikurinn á EM var á móti Frakklandi aðeins átta dögum síðar. Enska landsliðið vann leikinn 6-1 þar sem bæði Wayne Rooney og Darius Vassell skoruðu tvö mörk. Fyrsta markið skoraði hins vegar Frank Lampard á 20. mínútu og átján mínútum síðar var Rooney búinn að bæta við tveimur mörkum. Heiðar Helguson minnkaði muninn á 42. mínútu með skalla úr markteig eftir hornspyrnu. Allir þrír íslensku miðverðirnir lögðu upp markið. Hermann skallaði horn Þórðar Guðjónssonar aftur fyrir markið, Pétur Marteinsson reyndi hjólhestaspyrnu en hún fór af Ívari Ingimarssyni og til Heiðars sem skallaði boltann í markið af stuttu færi. Íslensku strákarnir fengu slæma umfjöllun í ensku blöðunum fyrir leikinn sem voru hrædd um að hinir grófu leikmenn íslenska liðsins myndu slasa ensku stórstjörnurnar rétt fyrir stórmót. Íslensku strákarnir pössuðu sig því allt of mikið á því að meiða ekki ensku landsliðsmennina, lítið var um hörð návígi og ekkert gult spjald fór á loft. „Þetta gekk ekki alveg upp hjá okkur en mér fannst við byrja leikinn mjög vel, við vorum öruggir með boltann og náðum ágætu spili okkar á milli. Þeir skora síðan þrjú mörk að ég held í þremur fyrstu færum sínum í fyrri hálfleik. Og það var erfitt hjá okkur eftir það,“ sagði Heiðar Helguson í viðtali við Morgunblaðið eftir leikinn. Spurður um hvort meiri baráttu og „víkingaanda“ hefði vantað í íslenska liðið gegn Englendingum sagði Heiðar að það hefði vissulega getað skipt máli. „Það er aldrei að vita hvað hefði gerst ef við hefðum leikið eins og við erum vanir. En það er óhætt að segja að við höfum fengið skell hér í Manchester. Ef við töpum 6-1, þá er það skellur, sama við hverja við erum að leika og í hvaða móti sem er. Við verðum bara að bæta okkur og sjá til þess að slíkir hlutir endurtaki sig ekki, það má ekki,“ sagði Heiðar í sama viðtali. Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá leiknum á Youtube síðu enska knattspyrnusambandsins. Mark Heiðars Helgusonar kemur eftir tvær mínútur. watch on YouTube Leikur Íslands og Englands á Wembley í kvöld hefst klukkan 19.45 og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Upphitun fyrir leikinn hefst á Stöð 2 Sport klukkan 19.00 og leikurinn verður síðan gerður upp eftir að honum lýkur með viðtölum við íslensku landsliðsmennina og Erik Hamrén eftir sinn síðasta leik sem landsliðsþjálfari Íslands.
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Hákon og félagar upp í þriðja sætið Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn Sjá meira