Innlent

Vörubíll valt milli Hveragerðis og Selfoss

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi í dag. Sjá má bikið sem hefur dreifst yfir veginn.
Frá vettvangi í dag. Sjá má bikið sem hefur dreifst yfir veginn. Brunavarnir Árnessýslu

Lokað hefur verið fyrir umferð um Suðurlandsveg í austurátt við Kotströnd eftir að vörubíll valt á þriðja tímanum. Ökumaður var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til aðhlynningar en meiðsli hans eru talin minniháttar.

Haukur Grönli, varaslökkvliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, segir í samtali við Vísi að bílveltan hafi orðið við nýja vegkaflann á milli Hveragerðis og Selfoss, við Kotströnd.

Umferð sé lokað í austurátt en beint um Hvammsveg. Vörubíllinn var að flytja bik sem mun taka einhvern tíma að hreinsa.

Vörubíll fór einnig á hliðina eftir hádegið í gær í umdæmi Brunavarna Árnessýlu á aðrein frá Þrengslavegi til Reykjavíkur. 

Bílvelta var við Kotströnd um kl.14:30 Brunavarnir Árnessýslu, Lögreglan á Suðurlandi og sjúkraflutningar HSU fóru á...

Posted by Brunavarnir Árnessýslu on Thursday, October 15, 2020

Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×