Þóra Kristín Jónsdóttir landsliðskona í körfubolta og samherjar hennar danska meistaraliðinu í AKS Falcon luku keppni í úrvalsdeildinni í kvöld með sannfærandi sigri á Sisu, 88:65.
Falcon hafði löngu tryggt sér deildarmeistaratitilinn en liðið vann fimmtán leiki af sextán í deildinni og fékk 30 stig, fjórtán stigum meira en næsta lið, og leikur gegn Aabyhöj í undanúrslitunum um danska meistaratitilinn.
Þóra Kristín skoraði 14 stig í kvöld, átti tvær stoðsendingar og tók tvö fráköst en hún spilaði í 22 mínútur.