Sendi barnsmóður sinni ógnandi skilaboð Árni Sæberg skrifar 4. júlí 2022 14:24 Maðurinn hlaut dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum. Vísir/Vilhelm Karlmaður var á dögunum dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir ítrekuð brot gegn blygðunarsemi fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður, hótanir og brot í nánu sambandi með því að hafa sent henni móðgandi smáskilaboð.
Brot mannsins voru framin á árunum 2018 og 2020. Brotin árið 2018 teljast til hegningarauka við dóm sem maðurinn hlaut árið 2020. Ummælin árið 2020 lét maðurinn falla skömmu eftir að sá dómur gekk en hann var fyrir ofbeldi gegn konunni. Maðurinn neitaði sök í öllum ákæruliðum en gekkst þó við því að hafa sent skilaboðin sem um ræddi í málinu. Hann bar það fyrir sig hann hefði verið beittur ofbeldi í sambandinu sem varði frá 2015 til 2018. „Þú þarft að vita vertu viss að sá sem er að ríða þér núna brjóti í þér tennurnar í minn stað,“ er meðal þess sem maðurinn sendi konunni. Mörg skilaboðanna sneru að því að konan stundaði kynlíf með öðrum mönnum. Þá hótaði hann konunni ofbeldi í mörgum skilaboðanna. Krafðist tveggja og hálfrar milljónar Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að brot mannsins hafi réttilega verið heimfærð til ákvæða hegningarlaga og að hann hafi gerst sekur um alla ákæruliði. Dómur mannsins frá 2018 var dæmdur upp og refsing ákveðin í einu lagi tólf mánuðir. Níu mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir. Þá var hann dæmdur til að greiða konunni 800 þúsund krónur í miskabætur en hún hafði farið fram á tvær og hálfa milljón króna. Að lokum var hann dæmdur til að greiða málsvarnarlaun skipaðra verjandasinn, alls 950 þúsund krónur og hluta þóknunar skipaðs réttargæslumanns brotaþola sem alls var ákveðin 2,2 milljónir króna en þriðjungur hennar greiðist úr ríkissjóði. Dóm Héraðsdóms Reykjavíkur má lesa í heild sinni hér.
Dómsmál Reykjavík Stafrænt ofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Fleiri fréttir Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkisstjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Sjá meira