Milner fékk vítapunktinn í kveðjugjöf Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. maí 2023 07:01 James Milner fékk þennan fína vítapunkt í kveðjugjöf frá vallarstarfsmönnum Liverpool. Vísir/Getty Eftir átta ára veru hjá Liverpool er James Milner á leið frá félaginu. Til að þakka honum fyrir þjónustu sína við félagið gáfu vallarstarfsmenn honum eitt stykki vítapunkt í kveðjugjöf.
Milner gekk í raðir Liverpool árið 2015 frá Manchester City. Síðan þá hefur hann leikið 229 deildarleiki fyrir félagið, en hann tilkynnti það á dögunum að yfirstandandi tímabil yrði hans síðasta með félaginu. Þessi 37 ára gamli leikmaður hefur því þegar leikið sinn seinasta heimaleik fyrir félagið. Liðið á þó einn leik eftir í deildinni; útileik gegn Southampton næstkomandi sunnudag. Þrátt fyrir að vera ekki beint mesti markaskorari ensku úrvalsdeildarinnar er James Milner þó afar örugg vítaskytta. Á ferli sínum hefur hann tekið 35 spyrnur og 30 þeirra hafa ratað í netið, en það gerir rétt tæplega 86 prósent vítanýtingu. Það má því ætla að leikmaðurinn hafi verið duglegur að æfa vítaspyrnur og það hefur greinilega eitthvað pirrað vallarstarfsmenn Liverpool. Nú þegar Milner er á förum frá félaginu ákváðu þeir að gefa honum vítapunkt í kveðjugjöf og með fylgdi kort sem sagði að nú væri komið að honum að sjá um punktinn. View this post on Instagram A post shared by James Milner (@jamesmilnerofficial) „Eftir átta ár af því að þú sért að eyðilegga vítapunktana okkar er nú komið að því að þú sjáir um einn sjálfur,“ segir á kortinu áður en leikmanninum er óskað velfarnaðar.
Enski boltinn Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Fótbolti „Með því glórulausasta sem ég hef séð“ Körfubolti Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Handbolti Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Enski boltinn Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér Körfubolti Besta-spáin 2024: Nálgast núllpunktinn á ný Íslenski boltinn Hlauparinn sem fékk að vinna fær ekki að halda sigrinum Sport Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Fótbolti Fleiri fréttir Xabi Alonso tók metið af Conte Sería A örugg með fimm Meistaradeildarsæti Besta-spáin 2024: Brakar í heila prófessorsins Nagelsmann framlengir samning sinn við þýska landsliðið Besta-spáin 2024: Nálgast núllpunktinn á ný Hafi ekki séð styrkleika sína nægilega vel Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Besta-spáin 2024: Svífa áfram á bleika skýinu Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu Læknar sögðu Arnór heppinn að ekki skyldi hafa farið verr Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr Klopp ætlar rifja upp frægu Barcelona ræðu sína í kvöld Skulda Ronaldo meira en milljarð og hafa kannski ekki efni á Alberti „Er eiginlega ennþá í sjokki“ Sjá meira