Sport

NFL sektaði þjálfara meistaranna fyrir að slá sinn eigin leikmann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bruce Arians gerði Tampa Bay Buccaneers að meisturum í fyrra en það hjálpaði auðvitað mikið að vera með Tom Brady sem leikstjórnanda.
Bruce Arians gerði Tampa Bay Buccaneers að meisturum í fyrra en það hjálpaði auðvitað mikið að vera með Tom Brady sem leikstjórnanda. AP/Mark LoMoglio

Bruce Arians, þjálfari ríkjandi NFL-meistara Tampa Bay Buccaneers, var sektaður í vikunni en það var þó ekki fyrir að rífast við eða gagnrýna dómara.

Arians fékk fimmtíu þúsund dollara sekt fyrir að slá sinn eigin leikmann en það eru 6,4 milljónir íslenskra króna.

Buccaneers sló Philadelphia Eagles örugglega út úr fyrstu umferð úrslitakeppninnar um síðustu helgi og fram undan er leikur á móti sjóðheitu liði Los Angeles Rams.

Leikmaðurinn sem um ræðir var varnarmaðurinn Andrew Adams sem hafði þar hætt á það að fá sig refsingu fyrir að reynda toga andstæðing úr hrúgu leikmanna yfir boltanum.

Arians sló í hjálminn á leikmanninum og gaf honum líka olnbogaskot. Hann var spurður um það á blaðamannafundi hvort hann sæi eftir því að hafa slegið Adams. „Nei,“ svaraði Bruce Arians og hélt áfram:

„Ég hef séð nóg af heimsku. Þú mátt ekki toga leikmenn úr hrúgu. Við vorum að ná að klára góða vörn og vorum í góðri stöðu á vellinum. Hann var að gera tóma vitleysu með því að toga leikmanninn í burtu og ég var að reyna að vekja hann aðeins svo hann fengi ekki á sig refsingu,“ sagði Arians.

Bruce Arians er 69 ára gamall og hefur þjálfað í deildinni frá 1989. Hann hefur verið aðalþjálfari Tampa Bay Buccaneers frá 2019 en þjálfaði þar á undan lið Arizona Cardinals frá 2013 til 2017.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×