Bjargaði kjúklingi í beinni

Leikjarinn
Leikjarinn Grafík/Leikjarinn

Efnishöfundurinn og streymarinn Birkir Fannar eða „Leikjarinn“ spilar ýmsa tölvuleiki og streymir frá þeim á Twitch rásinni sinni undir nafninu Leikjarinn.

Finna má heil streymi sem geta varið í nokkrar klukkustundir en einnig má finna stutt brot úr streymum.

Í þessu myndbandi hér að neðan er Leikjarinn að spila tölvuleikinn Sea of Thieves en kjúklingur í búri dettur óvænt í sjóinn. Bregður Leikjaranum mjög við það og stekkur á eftir kjúklingnum og til mikillar ánægju nær hann að bjarga kjúklingnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert