Efnahagshorfur hafa versnað frá því í júlí Heimir Már Pétursson skrifar 23. september 2020 19:21
Veruleg hætta er á að fjöldi fyrirtækja sæki í greiðsluskjól eða verði gjaldþrota á næstu mánuðum og atvinnuleysi aukist að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Á fundi fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans í dag kom fram að efnahagshorfur hefðu versnað frá því í júlí og samdráttur í ferðaþjónustu gæti smitast í aðrar greinar. Veruleg hætta væri á að fjöldi ferðaþjónustufyrirtækja fari í gjaldþrot á næstu mánuðum. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir aðgerðir seðlabankans hafa aukið svigrúm viðskiptabankanna til að koma til móts við fyrirtæki í tímabundnum vanda vegna kórónuveirufaraldursins. Seðlabankastjóri segir mikilvægt að stjórnir lífeyrissjóða endurskoði reglur sem tryggi sjálfstæði þeirra. Enda séu sjóðirnir ráðandi á markaði og orðnir stærri en bankaklerfið.Stöð 2/Sigurjón „Það var samið um það við bankana um að það yrði greiðslufrysting sem er núna að fara að renna út. Þannig að nú myndi maður halda að runninn sé upp tími endurskipulagningar,“ segir Ásgeir. Fjármálaeftirlitið heyrir nú undir Seðlabankann og sagði Ásgeir eftirlitið hafa fylgst vel með hlutafjárútboði Icelandair, kallað eftir gögnum og kanni nú framkvæmd þess. „Fjármálaeftirlit Seðlabankans telur að útboðið sem slíkt og framvinda þess gefi tilefni til umhugsunar um fyrirkomulag við ákvaðaranatöku þegar kemur að einstökum fjárfestingum lífeyrissjóðanna,“ sagði Ásgeir. Eftilitið hafi ítrekað tilmæli til sjóðanna um að þeir endurskoði samþykktir sínar til að tryggja sjálfstæði stjórnarmanna. Hann gæti ekki tjáð sig um einstaka lífeyrissjóði í því sambandi en ljóst að hann var að vísa til opinberra ummæla innan úr röðum Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar í aðdraganda útboðs Icelandair. Ertu að meina að þessir aðilar sem eiga fulltrúa í þessum stjórnum, lífeyrissjóðanna, eigi yfirleitt ekki að hafa skoðun á því hvernig sjóðirnir ráðstafa sínum fjárfestingum? „Alls ekki,“ sagði seðlabankastjóri en minnti á að lífeyrissjóðirnir væru ráðandi með á sjötta þúsund milljarða eignir og orðnir stærri en bankakerfið. „Og í ljósi þess hvað þetta eru gríðarlega miklir peningar, hvað þetta eru miklir hagsmunir fyrir þjóðina, má alveg velta fyrir sér hvort þurfi ekki aðeins að endurskoða þetta fyrirkomulag. Auðvitað geta verkalýðsfélög og atvinnurekendur einstakra fyrirtækja haft ákveðnar skoðanir á þessum hlutum. En það verður þá að koma fram með almennum hætti en ekki með ákvörðunum um einstaka fjárfestingarkosti,“ segir Ásgeir Jónsson.
Seðlabankinn Icelandair Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Segir ákvörðun LIVE að sleppa kaupum í Icelandair einstaklega vel ígrundaða Formaður stjórnar LIVE segir fjárfestingarkostur sjaldan hafa verið rýndur jafn ítarlega og í nýlegu hlutafjárútboði. 23. september 2020 14:35 Kanna ákvarðanatöku lífeyrissjóða í tengslum við útboð Icelandair Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur hafið könnun á nýafstöðnu hlutafjárútboði Icelandair Group og ákvarðanatöku lífeyrissjóða í tengslum við það. 23. september 2020 12:20 Tími uppstokkunar fyrirtækja að renna upp Umsamin greiðslufrystinig lána fyrirtækja hjá bönkunum fer að renna út og reiknar seðlabankastjóri með að nú sé að fara að renna upp tími endurskipulagningar þeirra hjá bönkunum. 23. september 2020 11:39 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkanir Neytendur „Enda hefði hún hreinlega ekki nennt að þræta við mig endalaust“ Atvinnulíf Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Sjá meira
Segir ákvörðun LIVE að sleppa kaupum í Icelandair einstaklega vel ígrundaða Formaður stjórnar LIVE segir fjárfestingarkostur sjaldan hafa verið rýndur jafn ítarlega og í nýlegu hlutafjárútboði. 23. september 2020 14:35
Kanna ákvarðanatöku lífeyrissjóða í tengslum við útboð Icelandair Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur hafið könnun á nýafstöðnu hlutafjárútboði Icelandair Group og ákvarðanatöku lífeyrissjóða í tengslum við það. 23. september 2020 12:20
Tími uppstokkunar fyrirtækja að renna upp Umsamin greiðslufrystinig lána fyrirtækja hjá bönkunum fer að renna út og reiknar seðlabankastjóri með að nú sé að fara að renna upp tími endurskipulagningar þeirra hjá bönkunum. 23. september 2020 11:39