Gísli skoraði 100. markið

Gísli Þorgeir Kristjánsson sækir að marki Brasilíu í leiknum í …
Gísli Þorgeir Kristjánsson sækir að marki Brasilíu í leiknum í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sitt 100. mark fyrir A-landslið Íslands í handknattleik í leiknum gegn Brasilíu á heimsmeistaramótinu í Gautaborg í dag.

Gísli skoraði sitt annað mark í leiknum þegar hann minnkaði muninn í 23:22 á 35. mínútu leiksins og var þar með kominn í 100 mörkin. Þetta er hans 47. landsleikur.

Leikurinn hófst kl. 17 og er í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert