Ungar konur þurfa ekki að þiggja seinni skammtinn af AstraZeneca Heimir Már Pétursson skrifar 4. maí 2021 20:31 Konur yngri en fimmtíu og fimm ára sem boðaðar eru í seinni bólusetningu með AstraZeneca á fimmtudag þurfa ekki að mæta frekar en þær vilja og fá þá boðun síðar með öðru bóluefni. Stefnt er að því að bólusetja tæplega fjörutíu þúsund manns á landinu í þessari stærstu bólusetningarviku frá upphafi covid 19 faraldursins.
Í þessari viku er enn aðallega verið að bólusetja fólk í áhættu- og forgangshópum. Gefnir verða fjórtán þúsund skammtar af Pfizer, sex þúsund og fimmhundruð af Jansen, fimmtán þúsund af AstraZeneca og fjögur þúsund af Moderna. Danir hafa ákveðið að hætta notkun á Jansen efninu vegna áhættu á blóðtappamyndun og hafa margar yngri konur sem boðaðar hafa verið í bólusetningu með Jansen hér á morgun lýst áhyggjum af því. Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri lækninga hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir þessar áhyggjur algerlega óþarfar og óraunhæfar. „Þannig að við hvetjum konur til að koma þegar þær fá boð í bólusetningu. Eins og með alla bólusetningu; þetta er valfrjálst og það er alltaf hægt að bíða sem yrði þá aðeins fram í sumarbyrjun, að bíða eftir öðru bóluefni.“ Þannig að þið teljið að Jansen sé ekki með sama áhættuþáttinn og Astra fyrir ungar konur? „Nei, við teljum að svo sé ekki,“ segir Sigríður Dóra. Öðru gildi hins vegar með konur yngri en 55 ára sem fengu fyrri bólusetninguna með AstraZeneca fyrr á árinu og hafi nú verið boðaðar í seinni bólusetninguna á fimmtudag. Þær konur þurfi ekki að mæta. „Við gátum ekki skipt upp þessum hópi í boðunum. Þannig að við urðum að boða allan hópinn. Það er náttúrlega valkvætt að koma aftur í Astra en þær konur geta líka bara beðið og þær munu fá nýtt boð í Pfizer ef þær eru yngri en fimmtíu og fimm ára.“ Þannig að þær þurfa ekki að hafa áhyggjur? „Þær þurfa ekki að hafa áhyggjur, nei,“ segir Sigríður Dóra. Alma Möller, landlæknir.Vísir/Vilhelm Mjög stór dagur var í bólusetningum með Pfizer í Laugardalshöll í dag og mynduðust langar raðir bíla og fólks við Höllina í morgun. Alma Möller landlæknir segir enn stefnt að því að ljúka bólusetningum allra yfir sextán ára og eldri í lok júlí. „Já, þetta gengur auðvitað stórkostlega vel. Þannig að það eina sem er hamlandi er framboðið af bóluefnum og í hvaða takti þau koma,“ segir Alma. Landlækni var fagnað með lófaklappi af viðstöddum þegar hún síðan fékk sjálf sína bólusetningu í morgun. Hún kom færandi hendi með smáræði með kaffinu til starfsfólksins, hæstánægð með ganginn í bólusetningunum. Ertu kvíðin fyrir þinni eigin sprautu? „Nei. Ég hlakka mikið til,“ sagði Alma Möller.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Erlent Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Innlent Fleiri fréttir Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Sjá meira