„Lítum út eins og við séum ekki búnar að snerta körfubolta í mánuð“ Atli Arason skrifar 12. janúar 2022 22:43 Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur Facebook/Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var afar svekktur með 11 stiga tap gegn erkifjendunum í Keflavík í kvöld, 63-52. „
Það er ótrúlega leiðinlegt að tapa körfuboltaleik. Enn þá verra að tapa á móti Keflavík. Við bara einmitt lítum út eins og við séum ekki búnar að snerta körfubolta í mánuð,“ sagði Rúnar í viðtali við Vísi eftir leik en Njarðvíkingar lentu illa í Covid veirunni sem frestaði bæði leikjum og æfingum hjá liðinu. „Við höfum ekki spilað körfubolta í 32 daga. Sóknarlega vorum við algjörlega hræðilegar á köflum. Við fáum smá spark og þá sérstaklega með Kamillu og Láru sem komu af bekknum í fyrri hálfleik, en að finna lausnir, að vera sterkar, að hafa sjálfstraust á boltanum og einfaldir hlutir eins og gefa hann á milli manna vantaði.“ „Við vissum að Keflvíkingar myndu koma og vera agressífar og það átti ekki að koma okkur á óvart en við vorum bara ekki tilbúnar í þennan leik.“ Eftir að hafa byrjað leikinn illa þá komu Njarðvíkingar aftur inn í leikinn í öðrum leikhluta áður en þær misstu leikinn alveg frá sér í þeim þriðja þegar Keflavík skoraði 18 stig gegn 5. „Þetta eru leikkaflar þar sem við tökum ekki nógu vel á mótlætinu og ég tek það á mig. Ég þarf að finna einhverjar lausnir til að hvetja mína leikmenn áfram, að taka svona högg á kassann og bregðast betur við. Það er eitthvað sem ég tek á mig og þarf að finna lausnir á.“ Einhverjir gagnrýnendur Njarðvíkur liðsins hafa látið eftir sér að liðið treysti of mikið á erlenda atvinnumenn liðsins en þær voru allar undir meðaltölum sínum í stigaskori í kvöld. Það skiptir Rúnar ekki máli hvað þessar gagnrýnis raddir segja en hann segir af og frá að liðið sitt treysti einungis á framlag frá erlendu leikmönnum sínum. „Mér er bara alveg sama hvað fólk segir. Ég er með 12 leikmenn á skýrslu hvort sem þær eru með íslenskt vegabréf eða ekki. Ég legg ekki áherslu á að mínir erlendu leikmenn taki fleiri skot en hinir leikmennirnir mínir. Ég legg áherslu á að spila liðsbolta. Ef t.d. Helena eða Kamilla fá endalaust af opnum skotum á vængjunum þá tökum við þau og ef við vinnum leiki þannig þá er mér bara alveg sama. Ef ég þarf að leita meira af kananum mínum, sem er klárlega 'go-to' leikmaður sem við getum sett boltann í hendurnar á og búið eitthvað til, ef það er opið þá gerum við það. Gagnrýnisraddir mega heyrast, þetta er liðsíþrótt og við erum með 12 leikmenn á skýrslu,“ svaraði Rúnar, aðspurður út í þessa gagnrýni. Njarðvík missti toppsætið til Fjölnis með þessu tapi en það truflar liðið ekki. Næsti leikur Njarðvíkur er einmitt gegn Fjölni og Rúnar kallar eftir betri frammistöðu þar en í kvöld. „Við erum með innbyrðis viðureignir á Fjölni. Þær eru búnar að spila fleiri leiki en við, en þær eru með jafn marga tapleiki, þrjá. Við erum búnar að vinna þær þrisvar í röð og við mætum þeim eftir viku og við hljótum að gera betur þá en við gerðum í kvöld,“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, að endingu.
UMF Njarðvík Subway-deild kvenna Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Fótbolti Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Fótbolti Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ Fótbolti „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Körfubolti Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Körfubolti Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Fótbolti Dagskráin í dag: Sófadagur í sólarhring Sport Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Fótbolti Fleiri fréttir Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Dagskráin í dag: Sófadagur í sólarhring Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Uppgjörið: Valur - Höttur 94-74 | Valsmenn taka forystuna í einvíginu Hergeir til Hauka Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sveinn Andri samdi við Stjörnuna Sjötta umferð GR Verk deildarinnar í kvöld: Þórsarar í efsta sæti Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Ísland í erfiðum riðli á EM Jóhanna Margrét skiptir um lið innan Svíþjóðar Curry reyndi að fá Clark til Under Armour en Nike hafði betur Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Fimmtán dagar á milli leikja í sama einvígi í Olís deild karla Besta-spáin 2024: Svífa áfram á bleika skýinu Sjá meira