Fótbolti

Gott gengi Fær­eyja heldur á­fram | Læri­sveinar Helga náðu að­eins jafn­tefli

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Færeyjar halda áfram að gera gott mót í Þjóðadeildinni.
Færeyjar halda áfram að gera gott mót í Þjóðadeildinni. Gaston Szerman/Getty Images

Alls fóru sjö leikir fram í Þjóðadeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fyrir utan leikina í A-deild þá ber helst að nefna sigur Færeyja á Andorra og markalaust jafntefli lærisveina Helga Kolviðssonar.

Leikirnir í riðli 4 í A-deild voru eðlilega þeir sem augu flestra voru á. Lesa má nánar um 3-3 jafntefli Þýskalands og Sviss ásamt óvæntum sigri Úkraínu á Spáni í Kænugarði hér.

Í riðli 1 í C-deild fóru tveir leikir fram, lauk þeim báðum með jafntefli. Aserbaídsjan og Kýpur gerðu markalaust jafntefli. Heldur meiri dramatík var í hinum leik riðilsins. Lúxemborg vann þá 2-1 útisigur á Svartfjallalandi. Sigurmarkið kom þegar fjórar mínútur voru til leiksloka og í uppbótartíma fengu þrír leikmenn reisupassann.

Igor Ivanovic kom heimamönnum yfir þegar rúmur hálftími var liðinn af leiknum. Edvin Muratovic jafnaði fyrir gestina skömmu áður en flautað var til hálfleiks Það var svo Daniel Sinani sem tryggði gestunum stigin þrjú með marki undir lok leiks.

Í uppbótartíma sauð svo upp úr og fékk Marko Jankovic beint rautt spjald hjá Svartfellingum og sömu sögu er að segja af Oliver Thill í liði Lúxemborgar. Marko Simic fékk svo sitt annað gula spjald fyrir að rífast við dómarann og því enduðu Svartfellingar níu inn á vellinum á móti tíu leikmönnum Lúxemborgar.

Í riðli 1 í D-deild unnu Færeyjar 2-0 heimasigur á Andorra þökk sé tvennu Klaemint Olsen í fyrri hálfleik. Hallur Hansson fékk gullið tækifæri til að tryggja Færeyjum sigurinn á 36. mínútu en hann brenndi þá af vítaspyrnu.

Það kom ekki að sök og öruggur sigur Færeyja staðreynd. Í hinum leik riðilsins vann Malta 1-0 útisigur í Lettlandi. Færeyjar tróna á toppi riðilsins með 10 stig eftir fjóra leiki. Þar á eftir kemur Malta með fimm, Lettland þrjú og að lokum Andorra með tvö stig.

Að lokum gerðu lærisveinar Helga Kolviðssonar í Liechtenstein markalaust jafntefi við San Marino. Liechtenstein hefur nú unnið einn, tapað einum og gert eitt jafntefli en Gíbraltar er þriðja liðið í riðli 2 í D-deild.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×