Telja Pírata svíkja stefnu sína um eftirlitssamfélag Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 21. mars 2023 19:52 Sósíalistar gagnrýna Pírata fyrir afstöðu þeirra gegn fyrirhuguðu auknu eftirlitsmyndavélakerfi í miðborg Reykjavíkur. Fyrirkomulag öryggismyndavéla í Reykjavík verður endurskoðað árlega en ekki á fimm ára fresti eins og nú er, samkvæmt breytingartillögu sem er til afgreiðslu í borgarstjórn í dag. Sósíalistar í borgarstjórn segja Pírata svíkja stefnu sína um eftirlitssamfélagið.
Fyrir um tveimur vikum samþykkti Borgarráð samkomulag um fjölgun öryggismyndavéla í miðborg Reykjavíkur aðallega vegna væntanlegs leiðtogafundar í Hörpu í maí. Sósíalistar voru einir á móti samkomulaginu en þeir hafa gagnrýnt samþykki Pírata og gefið í skyn að það samþykki kunni að hafa verið veitt fyrir mistök. Magnús Davíð Norðdahl, borgarfulltrúi Pírata segir engin mistök hafa verið gerð. „Það tel ég ekki vera. Það var ekkert samkomulag komið á fyrr en í dag og lokaniðurstöðunni fögnum við. Ég held að Sósíalistar ættu bara að skoða hið uppfærða samkomulag og fagna því, því það gerum við.“ Við afgreiðslu tillögunnar sat Magnús hjá en tveir borgarfulltrúar Pírata greiddu atkvæði gegn tillögunni. Uppfært samkomulag sem Magnús vísar til var á dagskrá borgarstjórnarfundar í dag. Það býður upp á árlega endurskoðun eða eftir atvikum uppsögn á samkomulaginu. Eldra samkomulag var óuppsegjanlegt til fimm ára. Þá verður ráðist strax í umfangsmikla greiningu á umgjörð myndavélakerfisins í borginni og verður þeirri vinnu lokið ekki síður en 1. nóvember. Sjálfur telur Magnús að eftirlitsmyndavélar séu af hinu góða. „Umgjörðin í kringum myndavélarnar þarf hins vegar að vera í lagi. Það þarf að liggja fyrir að umgjörðin sé ekki með þeim hætti að það sé verið að brjóta á mannréttindum borgaranna. Það þarf að fara fram greining á því hvort umgjörðin sé í samræmi við mannréttindasáttmála Reykjavíkurborgar, persónuverndarstjónarmið og þarfagreiningu.“ „Mér finnst þetta mjög sérkennilegt“ Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins undrast mjög þessa afstöðu Pírata. „Hún kemur mér mjög á óvart. Eftir að hafa heyrt í þeirra stefnu, þeir hafa þeir talað gegn svona vöktun og þessu eftirlitssamfélagi, svo að mér finnst þetta mjög sérkennilegt.“ Sanna telur að frekari umræða um málið sé nauðsynlegt og að tryggja þurfi að ekki sé brotið á friðhelgi einkalífs fólks með öryggismyndavélum. „Ég hef verið að kafa ofan i þetta og þær [myndavélarnar] eru mjög margar, það kemur manni á óvart hvað þær eru margar. Ég tel að við eigum frekar að kafa ofan í rót vandans til að tryggja öryggi í borginni, að við þurfum þá að skoða allskonar þætti sem ýta undir eða minnka i rauninni öryggi í borgarumhverfinu frekar en að vera með einhvernveginn svona vakt. Þetta eftirlitssamfélag er ekki að fara tryggja að við búum í öruggu samfélagi eða upplifum að við búum í öruggu samfélagi.“ Trausti Breiðfjörð Magnússon, borgarfulltrúi Sósíalista tjáði sig um málið í færslu á Facebook í dag. Þar segir hann það að „flokkar sem kenna sig við friðhelgi einkalífsins og borgararéttindi samþykki svona tillögur sýnir hversu langt frá grunnstefnu sinni þeir eru farnir.“
Leiðtogafundur Evrópuráðsins í Reykjavík 2023 Reykjavík Borgarstjórn Píratar Sósíalistaflokkurinn Tengdar fréttir Áhættumat RLS í hæsta stig og öryggismyndavélum fjölgað Yfirvöld gera ráð fyrir að áhættumat Ríkislögreglustjóra verði hækkað í hæsta stig í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins sem fram fer í Reykjavík dagana 16. til 17. maí næstkomandi. Þétta á net öryggismyndavéla í borginni fyrir fundinn. 14. mars 2023 06:49 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Sjá meira
Áhættumat RLS í hæsta stig og öryggismyndavélum fjölgað Yfirvöld gera ráð fyrir að áhættumat Ríkislögreglustjóra verði hækkað í hæsta stig í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins sem fram fer í Reykjavík dagana 16. til 17. maí næstkomandi. Þétta á net öryggismyndavéla í borginni fyrir fundinn. 14. mars 2023 06:49