Banna mengandi búnað sem leyfður er á Íslandi

Flutningsakip mega brenna svartolíu nota þau vothreinsibúnað, en skolvatninu er …
Flutningsakip mega brenna svartolíu nota þau vothreinsibúnað, en skolvatninu er iðulega sturtað í sjóinn. Í Danmörku stendur til að banna búnaðinn sem leyfilegur er hér á landi. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Breið pólitísk samstaða hefur myndast í Danmörku um bann við losun á skolvatni úr útblásturshreinsibúnaði (e. scrubber) í sjó innan landhelgi frá og með 1. júlí 2025. Niðurstöður rannsókna sem framkvæmdar hafa verið á undanförnum árum hafa bent til þess að skolvatnið valdi verulegri mengun, en notkun búnaðar af þessum toga var heimilaður hér á landi árið 2019, að því er fram kemur í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir í samtali við Morgunblaðið fyrirhugað bann í Danmörku hvatningu til íslenskra stjórnvalda að taka notkun búnaðar af þessum toga við Íslandsstrendur til endurskoðunar.

Löngu þekktur vandi

Margar þjóðir hafa um nokkurt skeið unnið að því að draga úr notkun svartolíu sem eldsneyti á skip með því að setja takmarkanir á eldsneyti sem inniheldur mikinn brennistein. Hefur víða verið sett bann við notkun á svartolíu sem eldsneyti á skip, en þó með undanþágu fyrir skip sem nýta hreinsunarbúnað.

Í febrúar 2020, aðeins tveimur mánuðum eftir að Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þáverandi umhverfisráðherra, heimilaði notkun hreinsibúnaðarins í reglugerð, greindi breska blaðið Guardian frá því að í leynilegri innanhússkýrslu Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) væri vakin athygli á mögulegri hættu sem stafaði af opnum vothreinsibúnaði.

Nú síðast í október á síðasta ári fjallaði Morgunblaðið um mat vísindamanna við Chalmers-tækniháskólann í Gautaborg og telja þeir að um 90% af skaðlegum efnum í höfnum í Evrópu, þar á meðal þrálát PAH-efni sem sögð eru valda krabbameini, megi rekja til losunar skolvatns úr hreinsibúnaði skipa.

Innviðaráðuneytið var þá innt álits á þessum niðurstöðum og sagði að gera mætti ráð fyrir að skolvatn væri losað í sjó umhverfis Ísland og að ráðuneytið fylgdist með því sem gerðist í málaflokknum innan IMO og Evrópusambandsins.

Umfjöllunina má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »