Sport

Dag­skráin í dag: Stór­leikur í Kapla­krika, Ofur­bikarinn, Liver­pool og Til­þrifin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Valsmenn mæta í Kaplakrika í dag og með sigri geta þeir farið langleiðina með að tryggja sér titilinn.
Valsmenn mæta í Kaplakrika í dag og með sigri geta þeir farið langleiðina með að tryggja sér titilinn. vísir/getty

Það er heldur betur nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag en alls má finna níu beinar útsendingar í dag.

Dubai Duty Free Open hefst klukkan 12.00 á Stöð 2 Golf í dag. Það er ekki eina golfmótið sem er sýnt frá í dag.

Corales Puntacana Resort & Club Championship fer einnig af stað í dag. Sýnt verður frá mótinu frá klukkan 19.00 á Stöð 2 Golf.

Það er Pepsi Max deildar karla veisla í kvöld. Klukkan 15.45 hefst upphitun fyrir leik FH og Val en liðin eru í tveimur efstu sætunum.

Í kjölfarið verður svo sýnt frá leik Fylki og Víking annars vegar og Breiðabliks og Stjörnunnar hins vegar en bæði lið töpuðu í síðustu umferð.

Í kvöld verður þetta svo allt gert upp í Pepsi Max tilþrifunum svo hægt verður að fylgjast með Pepsi Max deildinni frá klukkan 15.45 og fram eftir kvöldi.

Vodafonedeildin í CS:GO er svo í beinni á Stöð 2 eSport. Útsending hefst klukkan 19.15.

Englandsmeistarar Liverpool eru í eldlínunni í dag. Mæta þeir Lincoln í enska deildarbikarnum. Flautað verður til leiks klukkan 18.45.

Allar útsendingar dagsins má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×