Fjárfestingasjóðurinn MF1 undirbýr nú sölu á hlut sínum í Opnum Kerfum. Sjóðurinn á meirihluta í upplýsingatæknifyrirtækinu, eða ríflega 79 prósent. Eignarhaldsfélag Frosta Bergssonar, sem er einn af stofnendum Opinna Kerfa og stjórnarmaður, á tæplega 16 prósent og fer starfsfólk Opinna Kerfa með um fimm prósenta hlut í fyrirtækinu. Hluthafar hafa ráðið fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka til að hefja undirbúning og kanna möguleika á sölunni. Greint er frá þessum áformum í fréttatilkynningu.

Í tilkynningunni segir að mikill viðsnúningur hafi átt sér stað á rekstri Opinna Kerfa á síðasta ári í kjölfar breytinga. Ráðist hafi verið í breytingar á innra skipulagi félagsins og áherslur í vöruúrvali sem skilað hafi árangri.

Samkvæmt nýbirtum ársreikningi Opinna Kerfa fyrir árið 2020 jukust tekjur félagins um 5,4% frá fyrra ári og numu tæpum 3,9 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 215 milljónir króna, samanborið við 5 m.kr. árið áður. Þá lækkaði rekstrarkostnaður félagsins um 100 m.kr. milli ára.

„Afkoma síðasta árs og undanfarinna mánuða er staðfesting á þeim góða árangri sem starfsfólk Opinna Kerfa hefur náð á þessari vegferð. Opin Kerfi hafa verið leiðandi í rekstri upplýsingatæknikerfa hér á landi og sterkur samstarfsaðili og ráðgjafi fyrirtækja, bæði í miðlægum lausnum og notendalausnum. Við höfum mætt breyttum áherslum viðskiptavina og fjárfest umtalsvert í skýjalausnum og innviðum félagsins," segir Ragnheiðar Harðar Harðardóttir, forstjóri Opinna Kerfa í tilkynningunni.

Gísli Valur Guðjónsson, stjórnarformaður Opinna Kerfa og framkvæmdastjóri MF1, telur að nú sé góður tími til að kanna sölu á eignarhlut sjóðsins í Opnum Kerfum.

„Sjóðurinn hefur með fjárfestingu sinni og aðkomu að félaginu leitt það í gegnum umbreytingu á rekstri og efnahag sem hefur styrkt verulega afkomu og framtíðarhorfur Opinna Kerfa. Á þessum tímapunkti teljum við því rökrétt að nýir eigendur komi að félaginu og marki stefnu þess til framtíðar. Það felast mörg áhugaverð tækifæri í Opnum Kerfum þar sem áherslan á stafræna þróun, öruggar rekstrarlausnir og sveigjanleika er mun veigameiri en áður," er haft eftir Gísla Val.