Allt að gerast á Skagaströnd - Tveggja daga ljósalistahátíð Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 22. janúar 2022 15:01 Mörg flott og falleg verk verða á hátíðinni. Aðsend Það stendur mikið til á Skagaströnd á morgun og á mánudaginn því þá stendur Nes listamiðstöð fyrir ljósalistahátíðinni “Light up” í samvinnu við níu erlenda listamenn. Alls konar listaverk verða lýst upp með LED ljósum til að varpa birtu, búa til skugga, endurskin og fleira víða um Skagaströnd þessa tvo daga.
Á Skagaströnd búa tæplega 500 manns. Það er mikill kraftur í Nes Listamiðstöð á staðnum og þeim, sem stjórna miðstöðinni því þeir hafa nú undirbúið ljósahátíðina, sem mikil spenna er fyrir. Janúar er jú mjög dimmur mánuður og því er vel við hæfa að lýsa hann upp í tvo daga frá 18:00 til 21:30 eins og listamennirnir hjá Nes Listamiðstöð munu gera. Hátíðin er haldin í fyrsta sinn í ár og er vonandi komin til að vera.Aðsend Guðbjörg Eva Guðbjartsdóttir er stjórnarformaður miðstöðvarinnar og fer fyrir ljósahátíðinni á Skagaströnd. „Það eru í rauninni alls konar verkefni í gangi, á tjaldsvæðinu er til dæmis einn að vinna með risastórt tungl. Svo erum við að varpa ljósum á húsveggi og á steina, og svo er einn listamaður að búa til eldfjöll úr snjó. Þetta er ótrúlega upplífgandi fyrir bæinn, sérstaklega svona í mesta skammdeginu,“ segir Guðbjörg Eva. En hvernig geta íbúar og gestir notið hátíðarinnar? „Það er bara að fara í göngutúr og rölta um til að sjá öll listaverkin eða bara að kíkja á rúntinn, bara allt eins og fólki finnst best." Guðbjörg Eva Guðbjartsdóttir hjá Nes listamiðstöð á Skagaströnd, sem er ein af þeim, sem er í forsvari fyrir hátíðna.Einkasafn Þetta er svolítið sniðugt í Covid að gera þetta svona? „Já, við ákváðum að blása þetta ekki af þrátt fyrir allar takmarkanir af því að fólk getur haldið sig svolítið út af fyrir sig. Þó bærinn sé lítill þá eru fjölmargir staðir, sem við erum með verk á, þannig að það ætti ekki að vera neitt vandamál,“ segir Guðbjörg Eva. Guðbjörg Eva segist finna fyrir mikilli tilhlökkun fyrir ljóslistahátíðinni á Skagaströnd á morgun og hinn. „Ég bíð bara alla hjartanlega velkomna að koma hingað á Skagaströnd og sjá allt, sem listamenn eru búnir að setja upp, þetta er ótrúlega flott og spennandi, allavega það sem ég hef séð“. Listaljósahátíðin er aðeins möguleg með stuðningi frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra, minningarsjóðnum um hjónin frá Garði og Vindhæli, Kaupfélagi Skagfirðinga, Samkaupum og ómetanlegri aðstoð frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.Aðsend
Skagaströnd Menning Ljósmyndun Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Ný sýn fékk meirihluta Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Fleiri fréttir Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Sjá meira