Þinghald verður opið í Bræðraborgarstígsmálinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. desember 2020 15:36 Ákærði leiddur fyrir dómara þegar krafist var gæsluvarðhalds yfir honum. Vísir/Vilhelm Þinghald verður opið í máli Marek Moszczynski, karlmanns á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir manndráp og íkveikju á Bræðraborgarstíg í sumar. Svo segir í úrskurði Landsréttar sem staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis. Verjandi Mareks hafði farið fram á að þinghaldi yrði lokað þegar hann og geðlæknar gæfu skýrslu.
Þrír létust í brunanum á Bræðraborgarstíg í sumar og fleiri slösuðust. Þrettán manns voru inni í húsinu þegar Marek er talinn hafa valdið eldsvoðanum. Marek neitaði sök við þingfestingu málsins á dögunum. Þá fór Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Mareks, fram á að þinghaldi í málinu yrði lokað. Reikna mætti með mikilli þolraun í dómsal sem ætti ekki erindi við almenning. Því mótmælti Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari og sagðist ekki sjá ástæðu til að loka þinghaldi. Barbara Björnsdóttir dómari sagðist myndu taka kröfuna til skoðunar. Meira þurfi að koma til Landsréttur og héraðsdómur vísuðu báðir til þeirrar greinar stjórnarskrárinnar að dómþing skuli háð í heyranda hljóði. Frá því mætti víkja meðal annars til að gæta hagsmuna málsaðila. Um sé að ræða undantekningu frá meginreglu sem beri að skýra þröngt. Í úrskurði héraðsdóms segir að ríkar ástæður þurfi að vera til að víkja frá meginreglunni. „Þótt það sé yfirleitt þungbært fyrir ákærða og aðra þá sem mál varðar að þinghöld í sakamálum séu háð fyrir opnum tjöldum nægir það eitt og sér ekki til þess að þeim verði lokað, heldur verður eitthvað meira til að koma svo að það verði gert,“ segir í úrskurði Símonar Sigvaldasonar, dómstjóra við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Bruni á Bræðraborgarstíg Dómsmál Tengdar fréttir „Það eru náttúrulega ömurlegar fréttir“ Íbúar í Vesturbæ eru ekki kátir með að þurfa mögulega að bíða lengi eftir að rústir hússins sem brann við Bræðraborgarstíg í sumar verði fjarlægt. 27. október 2020 19:23 Sagður hafa kveikt eld á þremur stöðum í húsinu Þrettán manns voru í húsinu við Bræðraborgarstíg þann 25. júní í sumar þegar Marek Moszczynski kveikti eld á mörgum stöðum í húsinu. 25. september 2020 15:02 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Innlent Fleiri fréttir Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Sjá meira
„Það eru náttúrulega ömurlegar fréttir“ Íbúar í Vesturbæ eru ekki kátir með að þurfa mögulega að bíða lengi eftir að rústir hússins sem brann við Bræðraborgarstíg í sumar verði fjarlægt. 27. október 2020 19:23
Sagður hafa kveikt eld á þremur stöðum í húsinu Þrettán manns voru í húsinu við Bræðraborgarstíg þann 25. júní í sumar þegar Marek Moszczynski kveikti eld á mörgum stöðum í húsinu. 25. september 2020 15:02