Landsliðið spilar í borg mengunarmeistara og alræmds fangelsis Valur Páll Eiríksson skrifar 22. mars 2023 19:30 Bilino Polje-völlurinn í Zenica sem Ísland leikur á annað kvöld. Vísir/Valur Páll Íslenska landsliðið lenti í dag í Zenica í Bosníu þar sem leikur við landslið þeirra bosnísku fer fram í annað kvöld. Borgin er þekkt fyrir margt annað en fótbolta.
Zenica er fjórða stærsta borg Bosníu þar sem búa 110 þúsund manns. Fátækt er töluverð í borginni þar sem illa hefur gengið að reisa hana við eftir stríð. Um 80 prósent þeirra sem í borginni búa eru af bosnískum uppruna en þar eru um tvö þúsund Serbar og níu þúsund Króatar. Hún er þá að mestu múslimsk borg. Borgin byggir að mestu á stáliðnaði en einn stærsti stálframleiðandi heims, ArcellorMittal, heldur að stóru leyti uppi atvinnustigi í borginni. Fyrirtækið hefur sætt töluverðri gagnrýni fyrir brot á umhverfislögum en Bosnía er á meðal menguðustu ríkja heims, og Zenica er þar ofarlega á lista. Samkvæmt úttekt The Guardian frá árinu 2017 vantaði stálfyrirtækið fjölmörg starfsleyfi vegna umhverfismála og ítrekað brotið loforð um úrbætur á mengun af iðnaðinum. Zenica fangelsið sem var byggt árið 1886 er á meðal þess sem borgin er þekktust fyrir. Það er staðsett í miðri borg og er í raun eins og lítið hverfi innan borgarinnar. Það var stærsta og alræmdasta fangelsi fyrrum Júgóslavíu og stóð af sér stríðin á tíunda áratugnum. Eðli málsins samkvæmt er það stærsta fangelsi Bosníu í dag. Heimaborg Lovren og fyrrum forsætisráðherra Á meðal þeirra sem koma frá borginni eru Ahmet Hadžipašić, forsætisráðherra Bosníu frá 2003 til 2008, Króatinn Dejan Lovren, fyrrum leikmaður Liverpool, Serbinn Mladen Krstajić sem var miðvörður í landsliði Serba auk þess að leika með hjá Schalke og Werder Bremen árum saman. Ísland mun leika á Bilino Polje-leikvangnum í Zenica sem er heimavöllur Bosníu ásamt stærri velli í höfuðborginni Sarajevo. Leikvangurinn tekur tólf þúsund manns í sæti og á til að myndast afar góð stemning. „Þarna fær landsliðið mestan stuðning. Áhorfendur geta verið mjög heitir og stutt landsliðið ákaft en svo geta þeir auðveldlega snúist gegn því ef hlutirnir ganga ekki upp og spilamennskan er ekki góð. Þá getur þetta snúist upp í leiðindi,“ sagði fótboltaþjálfarinn og Bosníumaðurinn Ejub Purisevic um völlinn í Zenica í hlaðvarpinu Innkastið á Fótbolti.net. Við vonumst auðvitað til að mengunin sé orðin minni en árið 2017 og hafi sem minnst áhrif á strákana okkar er þeir mæta Bosníu klukkan 19:45 annað kvöld. Vísir verður með beina textalýsingu frá leik morgundagsins og gerir allt saman vel upp eftir leik.
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Í beinni: FH - Vestri | Bæði liðin á sigurbrautinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Í beinni: FH - Vestri | Bæði liðin á sigurbrautinni Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli FH-ingar kynna besta lið sögunnar Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Stórleikur á Samsung-vellinum og meistararnir fara í Mosó Rúnar Már fann neistann Ánægjulegar myndir af Cecilíu Rán Börn Maradona vilja flytja jarðneskar leifar hans Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park Sjá meira