Halda íbúafund vegna ágangs máva: „Maður heyrir alveg að húmoristarnir eru á kreiki“ Árni Sæberg skrifar 19. mars 2023 11:00 Almar Guðmundsson er bæjarstjóri Garðabæjar. Hann segir ágang máva stærra vandamál en margan grunar. Stöð 2/Arnar Íbúafundur er á döfinni í Garðabæ vegna ágangs máva, sem búist er við að aukist mikið á þegar varptíminn gengur í garð á næstunni. Bæjarstjóri Garðabæjar segir að málið sé alvarlegra en marga grunar.
Ágangur máva hefur lengi verið þyrnir í augum Garðbæinga, líkt og svo margra annarra. Þeir hafa leikið íbúa Sjálandshverfis, sem liggur meðfram strandlengjunni við Gálgahraun, sérstaklega grátt undanfarin ár. Fréttastofa fjallaði um vilja bæjarstjórnar til þess að fá leyfi til að stinga á mávaegg í hrauninu, en það er friðlýst, síðasta sumar. Nú gengur varptími máva senn í garð og því hefur bæjarstjórn Garðabæjar ákveðið að blása til íbúafundar vegna málsins. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir í samtali við Vísi að markmið fundarins sé fyrst og fremst að fræða íbúa um hvað þeir geti gert til þess að verjast mávinum. Hann mun sjálfur opna fundinn áður en dýravistfræðingur og meindýraeiðir halda erindi. Fundurinn verður opinn öllum íbúum Garðabæjar en Almar býst aðallega við íbúum í Sjálandi, þrátt fyrir að mávurinn sé vissulega til trafala víðar í bænum. „Við erum að undirbúa það sem við vitum að muni gerast, það er ansi mikill ágangur í nokkrum hverfum í bænum þegar varptíminn er í gangi. Við urðum mikið vör við þetta í fyrra, og undanfarin ár í rauninni, að íbúar kvarti yfir þessu. Auðvitað eru þetta nú bara dýr sem eiga skilið sitt pláss í náttúrunni en okkur þykir þurfa að hjálpa til við að sporna við versta áganginum allavega,“ segir Almar. Hústökumávar farnir að gera sig gildandi Almar segir að bærinn hafi ýmis úrræði til þess að sporna við ágangi máva í bæjarlandinu, enda séu þeir ekki friðaðir. Hins vegar sé mávurinn einnig farinn að gera sig gildandi á eignum bæjarbúa, sér í lagi í Sjálandinu. Þeir séu farnir að koma sér fyrir á þökum húsa og öðru slíku. „Ég held að þeir sem hafa ekki lent í þessu átti sig ekki á því hvað þetta er mikið, af því að maður heyrir alveg að húmoristarnir eru á kreiki og spyrja hvort þetta þurfi. En þá er það bara fræðsla til húsfélaga og íbúa, um hvað þeir geta gert ef mávar venja sig á að verpa á þökum eða í görðum þeirra,“ segir hann Vandamál víðar en í Garðabæ Almar segir að það séu ekki bara Garðbæingar sem finna fyrir ágangi máva og kvarta yfir honum. Hann situr í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og segir að á þeim vettvangi hafi, reyndar fyrir allmörgum árum, verið fastur dagskrárliður að samræma aðgerðir til þess að tækla mávavandamálið. „Einhverjir í okkar nágrannasveitarfélögum eru eflaust að gera eitthvað, þó að það fari kannski minna fyrir því en hjá okkur. Já, það er líf og fjör í þessu, þetta eru stóru málin. Þetta eru mikilvæg mál fyrir þau sem eru nærri þessu,“ segir Almar að lokum.
Garðabær Dýr Fuglar Tengdar fréttir Segir sjálfstæðismenn lýsa yfir stríði við máva Borgarfulltrúi Vinstri grænna, Líf Magneudóttir gagnrýnir framgang Sjálfstæðisflokksins hvað máva í Reykjavík varðar en hún segir flokkinn hafa lýst yfir stríði við fuglinn. Hún hvetur kjörna fulltrúa til þess að fella tillögu Sjálfstæðisflokksins sem vilji drepa unga mávana. 30. ágúst 2022 22:15 Dagur fetar ekki í fótspor Garðbæinga Eru mávar hatursefni? Samfélagið skiptist í fylkingar yfir þessu eins og borgarstjóri Reykjavíkur bendir á og sitt sýnist hverjum. Ólíkt öðrum sveitarfélögum, kemur þó ekki til greina í Reykjavík að fara að skjóta máva eða stinga á egg þeirra. 12. ágúst 2022 20:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira
Segir sjálfstæðismenn lýsa yfir stríði við máva Borgarfulltrúi Vinstri grænna, Líf Magneudóttir gagnrýnir framgang Sjálfstæðisflokksins hvað máva í Reykjavík varðar en hún segir flokkinn hafa lýst yfir stríði við fuglinn. Hún hvetur kjörna fulltrúa til þess að fella tillögu Sjálfstæðisflokksins sem vilji drepa unga mávana. 30. ágúst 2022 22:15
Dagur fetar ekki í fótspor Garðbæinga Eru mávar hatursefni? Samfélagið skiptist í fylkingar yfir þessu eins og borgarstjóri Reykjavíkur bendir á og sitt sýnist hverjum. Ólíkt öðrum sveitarfélögum, kemur þó ekki til greina í Reykjavík að fara að skjóta máva eða stinga á egg þeirra. 12. ágúst 2022 20:01