„Snorri er þjálfarinn minn og besti vinur minn“ Sindri Sverrisson skrifar 20. maí 2022 12:01 Stiven Valencia hefur farið á kostum með ógnarsterku liði Vals og stefnir á atvinnumennsku og landsliðið. Stöð 2 Sport Valsarinn Stiven Tobar Valencia er ekki bara frábær hornamaður sem stefnir á atvinnumennsku og landsliðið heldur einnig lunkinn plötusnúður sem skemmt hefur fólki á skemmtistaðnum 203 um helgar. Þetta kom fram í skemmtilegu spjalli Stivens við strákana í Seinni bylgjunni eftir magnaðan stórsigur Vals á ÍBV í gærkvöld í fyrsta leik einvígisins um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Stiven og félagar í Val virðast afar líklegir til að landa titlinum líkt og í fyrra og hann nýtur sín frábærlega, bæði í vörn og sókn, undir stjórn þjálfarans og silfurdrengsins Snorra Steins Guðjónssonar: „Ég elska Snorra, við náum mjög vel saman. Snorri er þjálfarinn minn og besti vinur minn. Við erum mikið að djóka hvor í öðrum,“ sagði Stiven og benti á að Snorri ætti sinn þátt í því hve vel hann hefði þróast sem varnarmaður síðustu misseri. Klippa: Stiven laufléttur eftir frábæran sigur Vals Það er þó ekki síst hraðinn og krafturinn í Stiven í hraðaupphlaupum sem vakið hefur athygli, og hvernig þeir Björgvin Páll Gústavsson markvörður vinna saman. „Ég og Bjöggi náum vel saman. Ég segi alltaf við Bjögga: Kastaðu þessu fram og ég næ þessu,“ sagði Stiven sem hefur sýnt að hann er með mikinn stökkkraft: „Það halda kannski allir að ég sé alltaf að „taka lappir“ [lappaæfingar í ræktinni] en ég tek aldrei lappir. Þetta er bara í genunum, eitthvað náttúrulegt.“ „Einhvern veginn endaði ég á að spila á 203 klúbbnum“ Stiven æfði einnig fótbolta á árum áður og prófaði sig áfram í píanónámi. Þá hefur hann verið að geta sér orð sem DJ: „Þetta er bara smá hobbí hjá mér. Ég byrjaði eitthvað að leika mér í þessu og svo þekkir maður mann. Einhvern veginn endaði ég á að spila á 203 klúbbnum og það gengur bara ágætlega. Ég er ekki að gigga mikið, sérstaklega núna þegar ég er í úrslitakeppninni, en maður tekur eitt og eitt,“ sagði Stiven léttur en allt spjallið við hann má sjá hér að ofan. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Olís-deild karla Valur Seinni bylgjan Tengdar fréttir Snorri Steinn: Blessaður vertu, þetta starf er bara áhyggjur Þrátt fyrir að Valur hafi rúllað yfir ÍBV í fyrsta leik úrslitaeinvígis Olís-deildar karla, 35-25, var Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Valsmanna, með báða fætur kyrfilega á jörðinni í leikslok. 19. maí 2022 22:16 Erlingur: Vantar þriðja dómarann í þessa íþróttagrein Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV, var skiljanlega svekktur eftir tapið fyrir Val í fyrsta leik úrslita Olís-deildar karla í kvöld, 35-25. 19. maí 2022 22:03 Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - ÍBV 35-25 | Ótrúlegir yfirburðir Vals Valur rústaði ÍBV, 35-25, í fyrsta leik liðanna í úrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. 19. maí 2022 21:11 Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Fótbolti Fleiri fréttir Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sjá meira
Þetta kom fram í skemmtilegu spjalli Stivens við strákana í Seinni bylgjunni eftir magnaðan stórsigur Vals á ÍBV í gærkvöld í fyrsta leik einvígisins um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Stiven og félagar í Val virðast afar líklegir til að landa titlinum líkt og í fyrra og hann nýtur sín frábærlega, bæði í vörn og sókn, undir stjórn þjálfarans og silfurdrengsins Snorra Steins Guðjónssonar: „Ég elska Snorra, við náum mjög vel saman. Snorri er þjálfarinn minn og besti vinur minn. Við erum mikið að djóka hvor í öðrum,“ sagði Stiven og benti á að Snorri ætti sinn þátt í því hve vel hann hefði þróast sem varnarmaður síðustu misseri. Klippa: Stiven laufléttur eftir frábæran sigur Vals Það er þó ekki síst hraðinn og krafturinn í Stiven í hraðaupphlaupum sem vakið hefur athygli, og hvernig þeir Björgvin Páll Gústavsson markvörður vinna saman. „Ég og Bjöggi náum vel saman. Ég segi alltaf við Bjögga: Kastaðu þessu fram og ég næ þessu,“ sagði Stiven sem hefur sýnt að hann er með mikinn stökkkraft: „Það halda kannski allir að ég sé alltaf að „taka lappir“ [lappaæfingar í ræktinni] en ég tek aldrei lappir. Þetta er bara í genunum, eitthvað náttúrulegt.“ „Einhvern veginn endaði ég á að spila á 203 klúbbnum“ Stiven æfði einnig fótbolta á árum áður og prófaði sig áfram í píanónámi. Þá hefur hann verið að geta sér orð sem DJ: „Þetta er bara smá hobbí hjá mér. Ég byrjaði eitthvað að leika mér í þessu og svo þekkir maður mann. Einhvern veginn endaði ég á að spila á 203 klúbbnum og það gengur bara ágætlega. Ég er ekki að gigga mikið, sérstaklega núna þegar ég er í úrslitakeppninni, en maður tekur eitt og eitt,“ sagði Stiven léttur en allt spjallið við hann má sjá hér að ofan. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olís-deild karla Valur Seinni bylgjan Tengdar fréttir Snorri Steinn: Blessaður vertu, þetta starf er bara áhyggjur Þrátt fyrir að Valur hafi rúllað yfir ÍBV í fyrsta leik úrslitaeinvígis Olís-deildar karla, 35-25, var Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Valsmanna, með báða fætur kyrfilega á jörðinni í leikslok. 19. maí 2022 22:16 Erlingur: Vantar þriðja dómarann í þessa íþróttagrein Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV, var skiljanlega svekktur eftir tapið fyrir Val í fyrsta leik úrslita Olís-deildar karla í kvöld, 35-25. 19. maí 2022 22:03 Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - ÍBV 35-25 | Ótrúlegir yfirburðir Vals Valur rústaði ÍBV, 35-25, í fyrsta leik liðanna í úrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. 19. maí 2022 21:11 Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Fótbolti Fleiri fréttir Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sjá meira
Snorri Steinn: Blessaður vertu, þetta starf er bara áhyggjur Þrátt fyrir að Valur hafi rúllað yfir ÍBV í fyrsta leik úrslitaeinvígis Olís-deildar karla, 35-25, var Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Valsmanna, með báða fætur kyrfilega á jörðinni í leikslok. 19. maí 2022 22:16
Erlingur: Vantar þriðja dómarann í þessa íþróttagrein Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV, var skiljanlega svekktur eftir tapið fyrir Val í fyrsta leik úrslita Olís-deildar karla í kvöld, 35-25. 19. maí 2022 22:03
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - ÍBV 35-25 | Ótrúlegir yfirburðir Vals Valur rústaði ÍBV, 35-25, í fyrsta leik liðanna í úrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. 19. maí 2022 21:11