Góður gangur í hagkerfinu þrátt fyrir mikla verðbólgu Bjarki Sigurðsson skrifar 31. maí 2023 21:01 Mjög mikill hagvöxtur var hér á fyrsta ársfjórðungi þessa árs eða sjö prósent ofan á mikinn hagvöxt undanfarin ár. Hagfræðingur Landsbankans segir góðan gang í hagkerfinu og staðan að mörgu leyti góð að frátalinni verðbólgu.
Á fyrsta ársfjórðungi jókst landsframleiðsla að raungildi um sjö prósent. Sú aukning er oftast þekkt sem hagvöxtur. Hagvöxtur á Íslandi er mun meiri en víðast hvar annars staðar á Vesturlöndum og hefur Seðlabankastjóri varað við því að hagkerfið geti ofhitnað. Atvinnulífið er á blússandi siglingu og mikil eftirspurn eftir vinnuafli þannig þúsundir útlendinga hafa verið kallaðir til landsins til að sinna eftirspurn eftir vinnuafli. Hagfræðingur hjá Landsbankanum segir að mikinn mun á hagvexti hér á landi og annars staðar á Vesturlöndum megi rekja til þess hve hlutfallslega stór ferðaþjónustan er hér á landi. Þá sýni hagvaxtartölurnar fram á að góður gangur sé á flestum stöðum í hagkerfinu. „Hagvöxturinn er góður, einkaneyslan er góð og hagvöxturinn er líka keyrður áfram á auknum útflutningi. Staðan er að mörgu leyti mjög góð en vandamálið sem vofir yfir er þessi verðbólga sem við erum að sjá,“ segir Hjalti. „En þessar tölur sýna að gangurinn er góður að mestu leyti í hagkerfinu þrátt fyrir þessa miklu verðbólgu. En það þarf jú að ná verðbólgunni niður.“ Aukin einkaneysla ýtir bæði undir aukinn hagvöxt og aukna verðbólgu. Tekið er fram í skýrslu Hagstofunnar um hagvöxtinn að aukin neysla þrátt fyrir hærra neysluverð geti verið vísbending um að heimili séu að einhverju leyti að ganga á sparnað til að ná endum saman. Hjalti segir tvo þætti ýta mest undir aukna einkaneyslu. „Það eru launahækkanir að mestu leyti. Að einhverju leyti gæti verið að fólk sé enn að ganga á sparnað sem hefur safnast upp í faraldrinum. Þessir tveir hlutir saman skapa verðbólguþrýsting,“ segir Hjalti.
Efnahagsmál Fjármál heimilisins Landsbankinn Íslenskir bankar Tengdar fréttir Segir stjórnvöld fórna heimilum ítrekað fyrir bankana Hagvöxtur mældist sjö prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Aukin einkaneysla, þrátt fyrir verðhækkanir, bendir til þess að heimili séu farin að ganga á sparnað sinn til að ná endum saman. Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna segir stöðuna gríðarlega alvarlega. 31. maí 2023 11:36 Efnahagslífið á milli steins og sleggju vaxta og verðbólgu Formaður Samtaka atvinnulífsins segir efnahagslífið á milli steins og sleggju hárra vaxta og mikillar verðbólgu. Það hljóti að vera markmið bæði atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar að ná niður verðbólgu og vöxtum og gera þess vegna langtíma kjarasamninga á komandi vetri. 25. maí 2023 11:47 Aðgerðir í húsnæðismálum forsenda langtímasamninga að mati Eflingar Sólveig Jónsdóttir formaður Eflingar segir félagið reiðubúið að gera langtíma kjarasamninga eins og seðlabankastjóri kalli eftir. Til þess að það megi verða þurfi stjórnvöld að hins vegar að koma að málum með vel útfærðar aðgerðir í húsnæðismálum. Verðbólgan og stjarnfræðilega há húsleiga vegna húsnæðisskorts væri að sliga láglaunafólk sem ætti varla fyrir helstu nauðsynjum. 24. maí 2023 19:31 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Viðskipti innlent Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Viðskipti innlent Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Viðskipti innlent Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Sjá meira
Segir stjórnvöld fórna heimilum ítrekað fyrir bankana Hagvöxtur mældist sjö prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Aukin einkaneysla, þrátt fyrir verðhækkanir, bendir til þess að heimili séu farin að ganga á sparnað sinn til að ná endum saman. Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna segir stöðuna gríðarlega alvarlega. 31. maí 2023 11:36
Efnahagslífið á milli steins og sleggju vaxta og verðbólgu Formaður Samtaka atvinnulífsins segir efnahagslífið á milli steins og sleggju hárra vaxta og mikillar verðbólgu. Það hljóti að vera markmið bæði atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar að ná niður verðbólgu og vöxtum og gera þess vegna langtíma kjarasamninga á komandi vetri. 25. maí 2023 11:47
Aðgerðir í húsnæðismálum forsenda langtímasamninga að mati Eflingar Sólveig Jónsdóttir formaður Eflingar segir félagið reiðubúið að gera langtíma kjarasamninga eins og seðlabankastjóri kalli eftir. Til þess að það megi verða þurfi stjórnvöld að hins vegar að koma að málum með vel útfærðar aðgerðir í húsnæðismálum. Verðbólgan og stjarnfræðilega há húsleiga vegna húsnæðisskorts væri að sliga láglaunafólk sem ætti varla fyrir helstu nauðsynjum. 24. maí 2023 19:31