Vantar meiri þekkingu á milli manna og ekki hægt að bíða mikið lengur Sindri Sverrisson skrifar 5. mars 2021 22:52 Finnur Freyr Stefánsson er með lið Vals utan úrslitakeppni eins og er, í 9. sæti. „Blóðþrýstingurinn er alltaf hár í þessu sporti, sérstaklega eins og deildin er núna og hvernig allt tímabilið er búið að vera,“ segir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sem er með liðið utan úrslitakeppni og í afar erfiðri leikjatörn. Valur tapaði fyrir Stjörnunni í kvöld eftir að hafa verið ellefu stigum yfir í hálfleik. „
Við þurfum bara að eiga við þetta verkefni. Núna er þessi leikur búinn, við vissum að Stjarnan er eitt besta ef ekki besta liðið á landinu, og að erfitt yrði að sækja hingað sigur. Við gerðum margt gott og tökum það með okkur en svo er fókusinn bara á ÍR,“ sagði Finnur eftir leikinn í kvöld. Fyrri hálfleikur var mjög góður hjá Valsmönnum en þeir náðu ekki að fylgja honum eftir: „Mér fannst við missa þá upp í þennan hraða leik sem þeir vildu spila á stórum köflum í seinni hálfleiknum. Þeir náðu upp stemningu með fjórum þristum snemma í þriðja leikhlutanum og náðu að komast á eitthvað flug. Á sama tíma þurftum við að fara að hafa meira fyrir öllum hlutum. Svo kemur bara í ljós hversu vel þjálfað og æft þetta Stjörnulið er. Við fengum augnablik en það komu auðveldar körfur frá þeim inni á milli sem drápu þetta,“ sagði Finnur. „Mitt lið er vel mannað en það má segja um öll lið í deildinni“ „Leikirnir eru upp og niður. Það skipti ekki öllu máli hvort við vorum fimm stigum undir eða tíu stigum yfir í hálfleik, við vildum bara halda áfram að reyna að gera það sama. Það var smáskellur að fá þristana beint í andlitið í byrjun þriðja leikhluta en leikurinn var samt í fínu jafnvægi í leikhlutaskiptunum. Svo misstum við þetta aðeins frá okkur og þetta var erfitt því þeir skutu boltanum vel í seinni hálfleik. Það verður að hrósa þeim fyrir að gera margt vel á löngum köflum. Þegar mest á reyndi þá vantaði hjá okkur að vera með það enn betur á hreinu hvað við vildum gera og hvert við vildum sækja. Það vantaði meiri reynslu og þekkingu á milli manna en vesenið er að það er ekki hægt að bíða mikið lengur eftir því,“ sagði Finnur sem nýverið bætti Hjálmari Stefánssyni og Jordan Roland í sinn hóp. Eflaust eru ýmsir þeirrar skoðunar að leikmannahópur Vals sé allt of góður til að komast ekki einu sinni í átta liða úrslitakeppnina. Hvernig finnst Finni að eiga við það? „Þessi mannskapur á blaði er eins og hann er. Það er oft þannig að menn telja þá sem hafa afrekað eitthvað áður ofar en til dæmis erlendu leikmennina, sem eru margir og góðir í deildinni núna. Það skekkir myndina líka. Mitt lið er vel mannað en það má segja um öll lið í deildinni.“
Dominos-deild karla Valur Mest lesið Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Enski boltinn „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Handbolti Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Enski boltinn Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Enski boltinn Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Enski boltinn Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Enski boltinn „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Körfubolti Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ Körfubolti Dagskráin í dag: Oddaleikur í Ólafssal, Hákon Arnar og margt fleira Sport Fleiri fréttir „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Svanirnir hefja flug í úrslitakeppninni „Við algjörlega frusum“ „Maður harkar þetta bara af sér og heldur áfram fyrir liðið“ Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 73 - 64 | Ótrúleg endurkoma tryggði Stjörnunni oddaleik Mætti eins og Gru í „Despicable Me“ og kláraði síðan Lakers Gaf á sjálfan sig, tróð með látum og fór svo meiddur af velli Úlfarnir með stórsigur í fyrsta leik gegn Suns Þórsarar unnu oddaleikinn og halda áfram í undanúrslit Öruggur sigur í fyrsta leik úrslitakeppninnar Miami og New Orleans síðustu liðin inn: Svona lítur úrslitakeppni NBA út „Við treystum á Remy og guð í kvöld“ „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ „Særð dýr eru hættulegustu dýrin“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Álftanes 88-84 | Keflvíkingar tóku forystuna í hörkuleik Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum