Cristiano Ronaldo hljómar eins og Brady: Ætlar að spila sex ár í viðbót Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2022 09:30 Cristiano Ronaldo er í afburðaformi. Hér fagnar hann marki með Manchester United á tímabilinu. Getty/Ash Donelon Þeir sem héldu að Cristiano Ronaldo væri kominn „heim“ til Manchester United til að kveðja geta búist við að sjá kappann á stóra sviðinu næstu ári. Hinn 36 ára gamli Portúgali telur sig eiga nóg eftir enn.
Ronaldo ræddi framtíðarplön sín í viðtali við ESPN í Brasilíu og þar kom fram að hann trúi því að hann geti jafnvel spilað þangað til að hann verður 42 ára gamall eða til ársins 2028. „Ég er ánægður með að vera leikmaður sem hefur sýnt að það er hægt að spila lengi á hæsta stigi og vera áfram að skila góðri frammistöðu,“ sagði Cristiano Ronaldo. Cristiano Ronaldo isn't finished yet pic.twitter.com/T1AlUGdz5J— ESPN UK (@ESPNUK) January 13, 2022 Ronaldo er farinn að hljóma eins og NFL-leikmaðurinn Tom Brady sem er enn að spila sinn besta leik þrátt fyrir að vera orðinn 44 ára. Brady hugsar mjög vel um sig og það gerir Ronaldo líka. Ronaldo er ekkert að fara að hætta. „Genalega þá líður mér eins og ég sé þrjátíu ára. Ég hugsa mjög vel bæði um líkamann og hugann. Það sem ég hef lært nýverið er að eftir 33 ára þá getur líkaminn skilað þér þangað sem þú vilt fara en aðalbaráttan er sú andlega,“ sagði Ronaldo. „Að fara í gegnum svo margt með það markmið að halda sér á hæsta stigi er það erfiðasta. Það hef ég verið að gera undanfarin ár. Ég hef unnið meira í huganum. Ég veit að líkaminn ræður við þetta því ég virði hann og hlusta á hann,“ sagði Ronaldo. „Lífið bíður upp á allskonar stundir, góðar og slæmar. Þegar þú dettur þá verður þú að hafa styrkinn til að standa upp aftur. Ég er ánægður og vil vera áfram hjá Manchester United og sjá hvað gerist. Ég vil komast að því hvort ég get spilað þangað til ég verð 40 ára, 41 árs eða 42 ára. Mikilvægasta að öllu er daglega markmið mitt að njóta hverrar stundar,“ sagði Ronaldo.
Enski boltinn Mest lesið Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Fleiri fréttir Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Sjá meira