EasyJet flýgur frá Akureyri til London í vetur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. maí 2023 11:31 Ferðamenn á gangi í miðbæ Akureyrar. Vísir/Vilhelm Opnað hefur verið fyrir bókanir í flugferðir með easyJet á milli London og Akureyrar í vetur. Fyrsta flugferðin verður 31. október en flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum, út mars 2024.
Greint er frá tíðindunum á heimasíðu Markaðsstofu Norðurlands. EasyJet er eitt stærsta flugfélag Evrópu. Ferðaskrifstofan NiceAir sem hélt úti flugi frá Akureyri til Evrópu var nýlega úrskurðuð gjaldþrota. EasyJet flýgur frá Gatwick-flugvelli í London til Akureyra en um er að ræða eina af fjórtán nýjum flugleiðum sem kynntar voru í dag. „Akureyri er höfuðstaður Norðurlands, sem býður upp á frábæra möguleika fyrir ferðamenn og er stutt frá aðdráttaröflum náttúru, menningar og sögu. Gestir geta notið hvalaskoðunar, farið í gönguferðir, fylgst með Norðurljósum eða farið í böð á sama tíma og þau njóta útsýnisins sem svæðið býður upp á,“ segir í tilkynningu frá easyJet. Flugfélagið er í samstarfi við ferðaskrifstofuna easyjet Holidays og því verður einnig boðið upp á pakkaferðir til Norðurlands í tengslum við þessar flugferðir. Samstarfsverkefnin spili lykilhlutverk „Vetrarflug easyJet er árangur áralangrar undirbúningsvinnu og samstarfs, þar sem ótalmörg hafa lagt hönd á plóg,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. „Þar spilar samstarfsverkefnin Flugklasinn Air66N og Nature Direct lykilhlutverk. Með tveimur flugferðum til London yfir vetrartímann verða til fjölmörg tækifæri fyrir norðlenska ferðaþjónustu, sem getur sýnt hversu öflug og samheldin hún er í því að gera Norðurland að eftirsóttum áfangastað. Það má segja að nýr áfangastaður sé að verða til fyrir Breta með þessum flugferðum, einmitt á þeim árstíma þar sem rólegra hefur verið í ferðaþjónustu. Að sama skapi verður til spennandi valmöguleiki fyrir ferðalög heimafólks og annarra atvinnugreina, bæði til Bretlands en einnig í tengiflugi í gegnum Gatwick.“ Góð reynsla hafi verið af því vetrarflugi sem boðið var upp á yfir vetrartímann fyrir nokkrum árum beint frá Bretlandi til Akureyrar. „Ferðaþjónusta á Norðurlandi hefur unnið vel í vöruþróun og markaðssetningu og það er nú að skila sér. Búast má við allt að 1500 gistinóttum á viku yfir vetrartímann með þessari nýju flugleið. Því má vænta þess að flug easyJet breyti þróun ferðaþjónustu á Íslandi með beinu aðgengi að Norður- og Austurlandi.“ Árangur áralangrar vinnu Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, fagnar ákvörðun breska flugfélagsins. „Það er mikið gleðiefni að easyJet hafi ákveðið að hefja flug til Akureyrar í vetur. Við tökum vel á móti farþegum þeirra. Það er sérstaklega gaman að fá þessa auknu umferð nú þegar styttist í að viðbygging við flugstöðina verði tekin í notkun og öllum framkvæmdum á vellinum síðan lokið vorið 2024.“ Fram kemur á vef Markaðsstofu Norðurlands að samtalið við easyJet megi rekja allt aftur til ársins 2014. Áhugi flugfélagsins hafi aukist jafnt og þétt. „En segja má að ýmsir stærri þættir hafi gert það að verkum að félagið tók ekki ákvörðun um að fljúga til Akureyrar fyrr en nú. Má þar nefna brotthvarf Breta úr ESB, heimsfaraldur Covid og uppbyggingu Akureyrarflugvallar sem stærstu áhrifaþættina,“ segir í tilkynningu.
Fréttir af flugi Akureyri Ferðamennska á Íslandi Akureyrarflugvöllur England Bretland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Viðskipti innlent Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Viðskipti innlent Oculis komið á markað Viðskipti innlent Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Viðskipti innlent Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Viðskipti innlent Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkanir Neytendur „Enda hefði hún hreinlega ekki nennt að þræta við mig endalaust“ Atvinnulíf Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Viðskipti innlent Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Viðskipti erlent Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Tekur við stöðu rekstrarstjóra Stöðvar 2 Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Sjá meira