Býst við að harðra aðgerða verði þörf þar til bóluefni kemur fram Kjartan Kjartansson skrifar 16. október 2020 18:58 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, undirbýr jarðveginn fyrir að grípa gæti þurft oftar til harðra aðgerða jafnvel eftir að núverandi bylgja faraldursins gengur niður í minnisblaði sínu til ráðherra um framhald sóttvarnaaðgerða. Vísir/Vilhelm
Íslenskt samfélag þarf að búa sig undir að kórónuveirusmit verði í samfélaginu næstu mánuðina og að líklegt sé að á einhverjum tímapunktum þurfi að beita hörðum aðgerðum til að koma í veg fyrir stóra faraldra, að mati sóttvarnalæknis. Í minnisblaði hans til ráðherra segir hann faraldurinn nú í línulegum vexti en ekki veldisvexti, líklega vegna þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til. Hertar sóttvarnaaðgerðir sem tóku gildi 6. október vegna hraðrar útbreiðslu faraldursins á höfuðborgarsvæðinu renna út á mánudaginn. Heilbrigðisráðuneytið greindi frá því í dag að aðgerðirnar yrðu áfram í gildi og hertar nokkuð á landsvísu. Frá og með þriðjudegi verði þannig grímuskylda á tilteknum stöðum um allt landið og tveggja metra fjarlægðarregla taki aftur gildi á landsbyggðinni. Þá verður allt íþrótta- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri sem krefst snertingar á höfuðborgarsvæðinu stöðvað tímabundið. Endanleg reglugerð um sóttvarnaaðgerðirnar verður kynnt í næstu viku. Í minnisblaði Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, til heilbrigðisráðherra kemur fram að daglegur fjöldi tilfella hafi verið á bilinu 50-100 frá því að gripið var til hertra aðgerða á höfuðborgarsvæðinu. Þannig sé faraldurinn í línulegum vexti en ekki veldisvexti. Hann telur líklegt að það muni taka nokkuð lengri tíma en eina til tvær vikur að sjá árangur af aðgerðunum þar sem veiran hafi náð að hreiðra um sig víða í samfélaginu. Hægt muni ganga að ná faraldrinum niður. „Að mínu mati þarf því íslenskt samfélag að búa sig undir að hér verði smit í þjóðfélaginu næstu mánuðina og líklegt að á einhverjum tímapunktum þurfi að beita hörðum aðgerðum til koma í veg fyrir stóra faraldra. Þetta ástand verður að líkindum viðvarandi þar til virkt og öruggt bóluefni verður tilbúið til notkunar sem verður líklega einhvern tíma á næsta ári,“ segir í minnisblaðinu. Telur Þórólfur ráðlegt að halda takmörkunum í gildi næstu tvær til þrjár vikurnar frá 20. október með möguleika á endurskoðun ef áhættumat breytist. „Ég vænti þess að þegar við förum að sjá faraldurinn ganga niður verði hægt að slaka á þeim aðgerðum sem nú eru í gangi. Samkvæmt fyrri reynslu og leiðbeiningum alþjóða stofnana þarf þó að fara með gát í öllum tilslökunum,“ segir hann.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Tengdar fréttir Nýsmituðum gæti fækkað heldur á næstu tíu dögum Smitstuðull í kórónuveirufaraldrinum er nú um 1,4, samkvæmt nýrri rýni um þróun faraldursins sem birt var í dag. 16. október 2020 14:52 Allar íþróttir með snertingu bannaðar á höfuðborgarsvæðinu Tilmæli sóttvarnalæknis um íþróttaiðkun verða nú að reglum. 16. október 2020 13:22 Tveggja metra regla um allt land á ný Tveggja metra reglan verður innleidd á öllu landinu á ný þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra um kórónuveiruaðgerðir tekur gildi í næstu viku. 16. október 2020 12:53 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Innlent Fleiri fréttir Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Sjá meira
Nýsmituðum gæti fækkað heldur á næstu tíu dögum Smitstuðull í kórónuveirufaraldrinum er nú um 1,4, samkvæmt nýrri rýni um þróun faraldursins sem birt var í dag. 16. október 2020 14:52
Allar íþróttir með snertingu bannaðar á höfuðborgarsvæðinu Tilmæli sóttvarnalæknis um íþróttaiðkun verða nú að reglum. 16. október 2020 13:22
Tveggja metra regla um allt land á ný Tveggja metra reglan verður innleidd á öllu landinu á ný þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra um kórónuveiruaðgerðir tekur gildi í næstu viku. 16. október 2020 12:53