Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. „Það hefur verið fjallað um mönnun í hjúkrun í langan tíma þannig að þessi staða ætti ekki að koma neinum á óvart. Það er skortur víða. Það skortir hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og lífeindafræðinga. Það eru mörg rauð flögg en vandinn birtist hvað mest á bráðamóttökunni,“ er haft eftir Guðlaugu.
Hún sagði að reynt hafi verið að draga úr álagi á bráðamóttökunni en það dugi ekki til. „Ég held að alveg sama hvernig maður veltir við þessum steini, þá sé það í raun og veru þessi síðasta Covid-bylgja sem veltir þunga hlassinu, það er bara þannig,“ sagði hún.
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sagði ástæður uppsagnanna vera þrjár: Of lág laun, mikið álag og slæmt starfsumhverfi. Guðlaug sagðist geta tekið undir þetta og að þessir þættir birtist allir á bráðamóttökunni. „Starfsumhverfið þar er ekki ákjósanlegt. Það beinlínis ógnar öryggi, eins og staðan getur oft verið. Það er í rauninni hættulegt. Svo er auðvitað álagið sem fólk upplifir og verður til þess að það hrökklast úr starfi. Þetta er ákveðinn vítahringur sem við verðum að geta klippt á,“ sagði hún.