Scholes segir að Neville hafi reynt að lokka sig til Everton Anton Ingi Leifsson skrifar 18. nóvember 2020 21:01 Paul Scholes í goðsagnaleik með Manchester United í fyrra. Getty/Matthew Ashton
Paul Scholes, goðsögn hjá Manchester United, segir að hann hafi íhugað að ganga í raðir Everton er hann snéri aftur í fótboltann árið 2012. Hann endaði þó að spila á ný með uppeldisfélaginu. Miðjumaðurinn hætti að spila eftir tímabilið 2010/2011. Hann fékk kveðjuleik á Old Trafford eftir sautján ár í rauða búningnum en hann var þó bara hættur í eitt ár. Í upphafi ársins 2012, er Scholes var að þjálfa U23-ára lið félagsins, þá vildi hann snúa aftur í fótboltann. Honum fannst hann enn geta spilað og endaði á því að reima á sig skóna á nýjan leik. Það var þó ekki alltaf í myndinni að það væri bara Man. United. „Ég snéri til baka í september 2011 með U23-ára liðinu og ég var að æfa á hverjum degi. Mér fannst ég vera í virkilega góðu líkamlegu formi eftir fjögurra mánaða hlé sem ég þurfti. Ég vildi byrja spila aftur,“ sagði Scholes. „Hvar það yrði var ekki svo mikilvægt. Ég bjóst ekki við því að United vildi mig aftur. Ég talaði við Phil Neville og hann sagði mér að koma til Everton. Ég vildi ekki spila fyrir neitt annað félag en ef þetta hefði verið eini möguleikinn hefði ég kannski gert það. Ég veit það ekki.“ Sir Alex Ferguson sannfærði svo Scholes um að koma aftur til Man. United. Hann lék sinn fyrsta leik gegn Man. City í FA-bikarnum í janúar og endaði á því að vinna sinn ellefta meistaratitil með félaginu. Skórnir fóru svo aftur upp í hillu í maímánuði 2013. Paul Scholes reveals Phil Neville tried to persuade him to join Everton when he came out of retirement in 2012 https://t.co/CYLB6GJbVb— MailOnline Sport (@MailSport) November 16, 2020
Enski boltinn Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti NFL-stjarna á tíu börn og hefur eignast fjögur síðasta árið Sport Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Fleiri fréttir Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni „Hefði hann klippt táneglurnar værum við ekki að ræða þessa vítaspyrnukeppni“ Sjá meira