Dómur yfir „Bosníu-slátraranum“ stendur óraskaður Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 8. júní 2021 15:11 Lífstíðardómur yfir Ratko Maldic var í dag staðfestur. EPA-EFE/Jerry Lampen Dómstóll Sameinuðu þjóðanna staðfesti í dag lífstíðardóm yfir bosníuserbneska herforingjanum Ratko Mladic. Maldic hafði áfrýjað dómi, sem féll árið 2017, þar sem hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir þátt sinn í þjóðernishreinsunum í Bosníu.
Mladic var sérstaklega dæmdur fyrir þátt sinn í fjöldamorðunum í Srebrenica árið 1995, þar sem um 8.000 bosnískir múslimar, drengir og menn, voru myrtir. Fjöldamorðin, sem voru framin á svæði sem átti að vera undir vernd Sameinuðu þjóðanna, er eitt versta ódæði sem framið hefur verið í Evrópu eftir lok seinni heimstyrjaldar. Enn er ekki ljóst hvar Mladic mun afplána lífstíðardóminn. Fimm dómarar sátu í áfrýjunardómstólnum og komust þeir að þeirri niðurstöðu að Mladic hafi ekki tekist að sanna það að fyrri dómur hafi ekki átt rétt á sér. Mladic hefur fordæmt dómstólinn og sagt að honum sé stjórnað af vestrænum öflum. Lögmenn hans héldu því fram í réttarhöldunum að hann hafi verið fjarri Srebrenica þegar fjöldamorðin áttu sér stað. Mladic, sem er einnig þekktur sem „Bosníu-slátrarinn“, er meðal síðustu herforingjanna frá Júgóslavíu sem hefur setið réttarhöld hjá Alþjóðlegum refsidómstól Sameinuðu þjóðanna. Hann var handtekinn árið 2011 eftir 16 ár á flótta. Árið 2017 var hann dæmdur sekur fyrir þátt sinn í blóðbaðinu í Srebrenica en var sýknaður fyrir þjóðarmorð sem hersveitir hans frömdu árið 1992 gegn bosníökum og bosnískum-Króötum. Árið 2016 dæmdi sami dómstóll Radovan Karadzic, fyrrverandi leiðtoga Bosníuserba, í fjörutíu ára fangelsi fyrir að hafa skipulagt fjöldamorðin í Srebrenica, auk annarra glæpa. Dómnum var hins vegar breytt í lífstíðarfangelsi árið 2019 og mun hann afplána fangelsisvistina í Bretlandi.
Bosnía og Hersegóvína Hernaður Sameinuðu þjóðirnar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Fleiri fréttir Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Sjá meira