Tónlist

Sautján ára rísandi stórstjarna slær í gegn á íslenska listanum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Söngkonan GAYLE er sautján ára gömul og með fleiri mánaðarlega hlustendur á streymisveitunni Spotify en Beyoncé. 
Söngkonan GAYLE er sautján ára gömul og með fleiri mánaðarlega hlustendur á streymisveitunni Spotify en Beyoncé.  Instagram: @gayle

Söngkonan GAYLE er sautján ára gömul og þrátt fyrir ungan aldur hefur henni tekist að ná gríðarlegum árangri í hinum stóra heimi tónlistarinnar.

Hún sendi frá sér lagið abcdefu í ágúst 2021 og situr lagið nú hátt á hinum ýmsu vinsældalistum sem og í fimmta sæti íslenska listans á FM957.

Sambandsslit sem enduðu með hittara

Lagið fjallar um sambandsslit þar sem söngkonan sparar ekki stóru orðin og virðist greinilega ekki par sátt við fyrrum elskhuga sinn. Viðlagið er ansi grípandi og auðvelt að raula með því sem hefur líklega haft mikil áhrif á vinsældir þess. Það var kynnt inn sem líklegt til vinsælda hjá okkur fyrir tveimur vikum og hefur nú stokkið upp í topp fimm. Lagið hefur einnig slegið í gegn á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem fjölmargir hafa tekið upp myndband af sér með lagið undir.

@gaylecantspell

this moment would not have happened without everyone streaming/making videos to abcdefu so from the bottom of my heart i just want to say thank you

abcdefu - GAYLE

The Weeknd með nýtt efni

Tónlistargleðin var í fyrirrúmi á íslenska listanum þessa vikuna, eins og alltaf. Söngvarinn Júlí Heiðar er að eiga öfluga endurkomu í íslensku tónlistarlífi þar sem lagið hans Ástin heldur vöku er komið upp í fjórða sæti. Kanadíski popparinn The Weeknd er svo með glænýtt lag á lista sem heitir Sacrifice og er að finna á glænýrri plötu hans Dawn FM sem kom út 6. janúar síðastliðinn.

Lagið When I’m Gone með þeim Katy Perry og Alesso var meðal þeirra laga sem voru kynnt inn sem líkleg til vinsælda í þessari viku. Íslenska tónlistarkonan Alma Goodman var meðal lagahöfunda á þeim hittara eins og Vísir fjallaði um hér

Justin Bieber hélt sínu striki aðra vikuna í röð í fyrsta sæti með lagið Ghost af plötunni Justice og Ed Sheeran fylgdi í öðru sæti með lagið Overpass Graffiti.

Hér má svo sjá listann í heild sinni:

Íslenski listinn á Spotify:


Tengdar fréttir

Justin Bieber vinsælastur

Íslenski listinn afhjúpaði vinsælasta lag vikunnar fyrr í dag og var það enginn annar en kanadíski popparinn Justin Bieber sem situr í fyrsta sæti.

Ed Sheeran trónir á toppnum

Fyrsti íslenski listi ársins 2022 fór í loftið fyrr í dag á FM957 en listinn er fluttur alla laugardaga frá klukkan 14:00-16:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×