Viðar Örn: Eins og íslenskt rallý á móti Formúlu 1 Gunnar Gunnarsson skrifar 10. maí 2021 22:35 Viðar var svekktur maður í kvöld. vísir/vilhelm Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, segir það mikil vonbrigði að liðinu hafi ekki tekist að halda sæti sínu í úrvalsdeild karla í körfuknattleik. Liðið féll í kvöld eftir 62-74 tap í lokaumferðinni gegn Keflavík. „
Líðan er slæm. Maður er eins og tóm blaðra,“ voru fyrstu orð Viðars eftir leikinn. „Við gerðum hlutina almennt ágætlega en skotin fóru ekki niður, við vorum með 17% þriggja stiga nýtingu. Til að vinna besta lið landsins hefðum við þurft að hitta á hörkuleik. Þeir voru betri og lölluðu í gegnum þetta.“ Deildin orðin ógnarsterk Þetta er í fjórða sinn sem Höttur spilar í úrvalsdeildinni. Árið 2005 var Viðar leikmaður en þjálfari 2015 og 2017. Í öll skiptin hefur liðið fallið strax niður aftur, en aldrei náð nærri eins mörgum stigum og nú, 14 eða verið jafn nærri að halda sér uppi. Í flestum árum hefði þessi stigafjöldi dugað til að haldast uppi. „Það er allt á fullu í kollinum á manni núna. Ég er mjög, mjög svekktur og vonsvikinn. Ég hef fengið það traust að setja saman þetta lið eins og ég vildi það til að búa til gott lið. Það er því mín ábyrgð að það hafi ekki haldið sér í deildinni en ég tek því. Ef liðið hefði haldið sér uppi hefði ég fengið klapp á bakið og því tek ég skellinn núna. Deildin í vetur hefur verið allt öðruvísi en þau ár sem ég hef áður verið í henni, ógnarsterk. Þetta er orðið eins og íslenskt rallý í samkeppni við Formúlu 1. Við töldum okkur með sterkt lið en það vantaði töluvert upp á. Ég er þó ánægður með að ég sem þjálfari, við sem einstaklingar og félagið í heild höfum þroskast við mótlæti í vetur. Við erum orðin betri en ekki nógu góð. Ef mín bíður ekki uppsagnarbréf í fyrramálið þá finnum við saman leið. Við þurfum að bæta deildina áfram og efla yngri flokkana. Við förum í fyrstu deildina til að vinna hana og fara beint upp. Okkar yfirmarkmið er að vera með gott úrvalsdeildarlið og styðja við öflugt körfuknattleiksstarf á Austurlandi. Ég sagði við fólk í dag að hvernig sem færi í kvöld væri þetta ekki spurning um að fara að grenja. Þótt ég hafi heitið því að sýna ekki tilfinningar eru þær við að brjótast út. En þótt ég sé drullusvekktur þýðir ekki að leggjast niður.“ Viðar kvaðst ekki geta svarað neinu um framtíð leikmanna Hattar. „Það hefur enginn pælt í því. Það hefur verið spilað stíf og leikirnir verið stórir upp á síðkastið. Allir hafa gert sitt besta til að Höttur geti verið í úrvalsdeild. Vonandi höldum við mörgum því það verður áfram körfubolti á Egilsstöðum.“
Dominos-deild karla Höttur Tengdar fréttir Hjalti: Eins og leikur í úrslitakeppni Hjalti Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, sagði sitt lið hafa þurft að hafa fyrir hlutunum í 62-74 sigri á Hetti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. Keflavík vann deildakeppnina með yfirburðum en Höttur féll. 10. maí 2021 22:11 Umfjöllun og viðtöl: Höttur - Keflavík 62-74 | Seigla Keflavíkur felldi Hött Höttur er fallinn úr úrvalsdeild karla í körfuknattleik eftir 62-74 tap gegn deildarmeisturum Keflavíkur á Egilsstöðum í kvöld. Keflavík nýtti skot sín í seinni hálfleik en tilraunir Hattar geiguðu. 10. maí 2021 20:55 Mest lesið „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Handbolti Djokovic segir þjálfaranum upp Sport Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Sport Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fótbolti „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Handbolti „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Handbolti „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum Körfubolti Fleiri fréttir Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ „Ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna við þann stóra“ Umfjöllun: Njarðvík-Haukar 84-71 | Sterkur sigur heimakvenna NFL ætlar að taka jólin frá NBA „Ekki týpan til að gefast upp“ „Öll félög á Íslandi vilja KR í efstu deild“ Valur vann stórsigur á Stykkishólmi Hætti við að hætta og varð bikarmeistari: „Súrealískt, líkt og í draumi“ KR aftur í deild þeirra bestu eftir stórsigur Um „slagsmálin“ í leik Utah og Houston: „Er ungt og leikur sér“ Þýðingarmikill leikur fyrir KR sýndur í beinni útsendingu KR-ingar geta endurheimt sæti meðal þeirra bestu í kvöld Arnar hættir að þjálfa bæði lið Stjörnunnar James Harden var bara að reyna að hafa gaman Martin drjúgur í miklivægum sigri Myndasería úr seinni bikarslag dagsins „Það verður partý um allan bæ“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Þór Ak. 89-67 | Keflavík bikarmeistari eftir stórsigur „Héldum bara áfram að berja á þeim“ „Held að ég hafi aldrei spilað fyrir framan svona marga á Íslandi“ Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik Boston heldur flugi og Oklahoma á toppinn Sjónvarpið í svarthvítu og forsætisráðherra ekki fædd Opinn fyrir öllu á Íslandi Lögmál leiksins: Dream Team eða Redeem Team? Lore: „Tilfinningin er frábær“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Njarðvík 86-72 | Keflavík í bikarúrslit annað árið í röð Umfjöllun, myndir og viðtöl: Þór Ak. - Grindavík 77-75 | Þór í bikarúrslit eftir hörkuleik Martin með stoðsendinguna í troðslu ársins Sjá meira
Hjalti: Eins og leikur í úrslitakeppni Hjalti Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, sagði sitt lið hafa þurft að hafa fyrir hlutunum í 62-74 sigri á Hetti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. Keflavík vann deildakeppnina með yfirburðum en Höttur féll. 10. maí 2021 22:11
Umfjöllun og viðtöl: Höttur - Keflavík 62-74 | Seigla Keflavíkur felldi Hött Höttur er fallinn úr úrvalsdeild karla í körfuknattleik eftir 62-74 tap gegn deildarmeisturum Keflavíkur á Egilsstöðum í kvöld. Keflavík nýtti skot sín í seinni hálfleik en tilraunir Hattar geiguðu. 10. maí 2021 20:55
Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Njarðvík 86-72 | Keflavík í bikarúrslit annað árið í röð